Við endurútreikninga loðnumælinga samkvæmt gæðaferlum Hafrannsóknastofnunar kom í ljós villa við úrvinnslu á bergmálsmælingum á stærð hrygningarstofns loðnu í vikunni sem hefur nú verið leiðrétt. Niðurstaða þeirrar mælingar hækkaði um 19 þúsund tonn, eða upp í 338 þúsund tonn. Þetta þýðir að leiðrétt loðnuráðgjöf um afla á vertíðinni 2020/21 er 61 þúsund tonn.
Eins og fram hefur komið áður er grunnur ráðgjafarinnar mat á stærð hrygningarstofns loðnu sem er byggt á meðaltali tveggja mælinga. Annars vegar á niðurstöðum bergmálsleiðangurs í desember og hins vegar á samanlögðum niðurstöðum tveggja bergmálsleiðangra í janúar.
Fyrri mælingin í janúar, upp á samtals 144 þúsund tonn, var takmörkuð að því leiti að engar mælingar voru gerðar í Grænlandssundi sökum hafíss. Enn fremur var magn loðnu á austur hluta svæðisins langt undir því sem mældist í desember. Seinni mælingin í janúar var á afmörkuðu svæði úti fyrir Austfjörðum, og þar mældust um 338 þúsund tonn. Yfirgnæfandi líkur eru á að loðnan austan við land hafi ekki verið hluti af mælingunni fyrr í mánuðinum og því eru þessar tvær mælingar teknar saman en þær gefa mat upp á 482 þúsund tonn og metnar til jafns á við mælinguna frá desember við mat á stærð stofnsins.
Ráðgjöf um aflamark byggist á því að 95% líkur séu á að hrygningarstofninn í mars verði yfir 150 000 tonnum að teknu tilliti til afráns. Saman minnka þessar mælingar óvissu í stofnmati og samkvæmt því leiðir þessi mæling til leiðréttrar veiðiráðgjafar upp á 61 þúsund tonn veturinn 2020/21 og kemur í stað fyrri ráðgjafar frá 22. janúar.
Hlekkur á loðnuráðgjöf 24. janúar 2021





















Skráðu þig á fáðu nýjustu tilkynningar fyrst
Ekki liggja fyrir nýjar mælingar
Hvað er sjóveiki?
Sjóveiki er misræmi milli skynfæra líkamans sem senda boð til heilans um hreyfingu – kyrrstöðu.
Þegar einstaklingur er úti á sjó þá nema skynjarar í vökvafylltum gangi í innra eyra hreyfingu og senda boð til heilans að einstaklingur sé á hreyfingu. Augun senda hins vegar boð til heilans um að viðkomandi sé kyrr. Heilinn á erfitt með að vinna úr þessum misvísandi og ósamræmdu upplýsingum og sendir skilaboð til magans um að tæma sig – þ.e. veldur uppköstum.
Einkenni sjóveiki eru þreyta, ógleði, svimi, svitakóf og uppköst.
Góð ráð til að hindra sjóveiki:
Lyf við sjóveiki þ.e. lyf sem slá á einkennin og fást án lyfseðils í apóteki.
Önnur ráð:
Hvar í skipinu er best að vera o.fl.
Þungun:
Þungaðar konur sem þjást af sjóveiki mega nota koffinátín í litlum skömmtum en best er að ráðfæra sig við lækni eða lyfjafræðing.
Þunguðum konum er ekki ráðlagt að nota engifer þar sem það er ekki staðfest hvort það geti haft skaðleg áhrif á fóstur.