Á mánudaginn veitti framkvæmdastjórn HSU viðtöku höfðinglegri gjöf frá Kvenfélaginu Líkn í Vestamannaeyjum, alls að verðmæti um 10.000.000 kr. Um er að ræða vöktunartæki fyrir lífsmörk sjúklinga, ásamt varðstöð, sem er gjöf til sjúkradeildar Sjúkrahússins í Vestmannaeyjum. Tækin samanstanda af vöktunarstöðvum sem auðvelda fagfólki sjúkrahússins að fylgjast af meiri nákvæmni og öryggi með ástandi sjúklinga.