Loðnufögnuður á sprengidegi

„Við fengum þessi 250-260 tonn í tveimur köstum á Meðallandsbugt, úti fyrir Skaftárósum. Þetta þykir nú ekkert sérstakt á  stað þar sem ætti að vera mokveiði. Lítil áta er í loðnunni og hrognahlutfallið um 15%,“ segir Jón Atli Gunnarsson, skipstjóri á Kap VE. Skipið kom til hafnar í Vestmannaeyjum seint í gærkvöld og löndun hófst kl. 7:30 í morgun.

Stundin er hátíðleg í sjálfu sér því loðna hefur ekki sést í Vestmannaeyjum frá því árið 2018 og því leyfa menn sér að brosa út í annað og jafnvel bæði. Nú er sprengidagur í Vestmannaeyjum í tvöföldum skilningi eða þannig.

Ísleifur VE og Huginn VE eru á miðunum en ekki liggur fyrir hvenær þeir koma til hafnar.

„Það sem við komum með er rétt til að koma verksmiðjunni í gang og ég geri ráð fyrir að við fáum að fara út aftur þegar löndun er lokið,“ segir Jón Atli.

„Loðnan liggur með ströndinni á löngum kafla. Það má vera að hún eigi eftir að þétta sig og þá verður auðveldara að eiga við veiðarnar. Auðvitað hefðum við vilja fá stærri kvóta en er á meðan er. Nú er um að gera að fá sem mest út úr því sem heimilt er að veiða. Það skiptir auðvitað máli fyrir þá sem vinna við að veiða loðnu og vinna úr henni og fyrir byggðarlagið. Gleymum svo ekki ríkiskassanum sem fær alltaf sitt líka og ekki veitir af, heyrist manni.“

Nýjustu fréttir

Dýpkunin í Landeyjahöfn sögð ganga vonum framar
ÍBV fallið úr Bestu deild karla eftir tap gegn Þór á Akureyri
ÍBV fyrst til að leggja ÍR að velli á tímabilinu
Eyjar liðins tíma lifna við – 1. þáttur
Tveir fyrir einn… og ævilöng áhrif
Íbúar hvattir til að móta framtíð atvinnulífs í Eyjum
„Mikilvægt að við fáum að láta rödd okkar heyrast“
Eyjamenn geta lyft sér af botninum með sigri á Þór
viðburðir
Atvinna
13. október 2026
17:15
Íbúaþing um atvinnustefnu í Eldheimum
Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.