Loðnuleit rædd í ríkisstjórn

Kristján Þór Júlíusson, sjávarútvegs- og landbúnaðarráðherra, gerði á fundi ríkisstjórnarinnar í morgun grein fyrir stöðu loðnuleitar. Vísaði ráðherra til þess að atvinnuvega- og nýsköpunarráðuneytið heimilaði nýverið grænlenska uppsjávarskipinu Polar Amaroq að stunda rannsóknir á loðnu innan íslensku efnahagslögsögunnar fyrir vestan og norðan Ísland á tímabilinu 20. til 28. nóvember síðastliðinn.

Hafrannsóknastofnun hefur fengið öll gögn sem safnað var í leiðangrinum og vinnur nú úr sýnum og greiningu gagnanna. Þeirri vinnu er ekki lokið en bráðabirgðaniðurstöður gefa til kynna að töluvert magn af kynþroska loðnu sé út af vestanverðu Norðurlandi og allt austur fyrir Kolbeinseyjarhrygg.  Þar sem yfirferð skipsins við mælingarnar var mjög gróf munu niðurstöður þeirra ekki verða grundvöllur endurskoðunar á ráðgjöf.

Næsti leiðangur Hafrannsóknastofnunar var áætlaður 15. janúar 2021 en hefur nú verið flýtt. Búið er í samráði við Samtök fyrirtækja í sjávarútvegi að tryggja þrjú skip til verkefnisins en ekki verður hægt að nýta skip Hafrannsóknastofnunar vegna viðhalds. Stefnt að því að hefja verkefnið um næstu helgi eða í byrjun næstu viku.  Gert er ráð fyrir að  um sex dagar fari í verkefnið hjá hverju skipi. Ætlunin er að ná mælingu á því magni sem fannst í yfirferð Polar Amaroq í síðustu viku.

Ástæða þess að Hafrannsóknastofnun telur rétt að fara til mælinga núna er að mögulega sé loðnan fyrr á ferðinni en undanfarin ár.  Á 9. og 10. áratug síðustu aldar var algengt að loðna væri gengin austur fyrir land í desember. Í ljósi sögunnar og upplýsinganna frá síðustu viku er ekki hægt að útiloka að hún muni á næstu vikum ganga austur fyrir land og verði í janúar komin á hafsvæði þar sem mælingar eru erfiðar, þ.e. við suðaustanvert landið.

Nýjustu fréttir

Halldór Jón aftur í ÍBV
Fluttu hús í heilu lagi
Sjáv­ar­af­urð­ir: Ágæt­is aukn­ing í fe­brú­ar
Eyjarnar landa í Þorlákshöfn
Þarftu að fara á fund?
Hljómey – Klara Einars mætir
Gildin sem móta okkur
Til Sjálfstæðismanna
Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.