Lögregla - Hátíðin fór vel fram og allflestir til fyrirmyndar
Ekki verra að vera velbúinn þegar vindar blása á Þjóðhátíð. Myndir Óskar Pétur.

„Lögreglan í Vestmannaeyjum var með mikinn viðbúnað yfir Þjóðhátíð og var stór aukið viðbragð. Um 30 lögreglumenn voru að störfum. Þá er rétt að taka fram að um 130 gæsluliðar voru lögreglu til aðstoða og sinntu almennri gæslu á hátíðarsvæðinu. Á hátíðarsvæðinu var einnig, að venju, sjúkraskýli þar sem læknir og hjúkrunarfæðingar stóðu vaktir, auk aðila í áfallateymi,“ segir í tilkynningu frá lögreglunni í Vestmannaeyjum að lokinni Þjóðhátíð um síðustu helgi.

„Talsverður erill var hjá lögreglunni í Vestmannaeyjum yfir Þjóðhátíð en samtals sinnti lögreglan 287 málum og verkefnum sem tengdust hátíðinni auk þess að halda úti öflugu eftirliti. Að mati lögreglu fór hátíðin þó vel fram og allflestir gestir til fyrirmyndar.

Þegar þetta er skrifað eru 18 hegningarlagabrot skráð í lögreglukerfið, flest ofbeldisbrot. Þá eru 23 sérrefsilagabrot skráð, flest áfengislagabrot og fíkniefnalagabrot. Nokkur umferðarlagabrot. Málin eru flest öll í rannsókn, en nokkrum hefur þegar verið lokið með svokallaðri lögreglustjórasátt (sekt). Samtals gistu 11 fangageymslur yfir hátíðina.

Það má þó reikna með að lögreglunni berist frekari tilkynningar um brot á næstu dögum, en lögreglu berast iðulega tilkynningar um brot eftir að hátíðin er yfirstaðin. Þessi tölfræði er því sett fram með þeim fyrirvara.

Margir létu veðrið ekki á sig fá og mættu í Brekkuna á föstudagskvöldið.

 

Þetta er sambærilegt við síðustu ár að mínu mati, en síðustu Þjóðhátíðir hafa farið nokkuð vel fram og tel ég að það tengist öflugum forvörnum á vegum Þjóðhátíðarnefndar og lögreglu sem hafa verið mjög sýnilegar sl. ár.

Þá sinnti lögregla ýmsum verkefnum vegna veðurs á föstudagskvöld og fram á aðfaranótt laugardags. Viðbragðsáætlun var virkjuð og var Björgunarsveit Vestmannaeyja ræst út til að aðstoða lögreglu og gæsluliða. Herjólfshöllin var jafnframt opnuð fyrir hátíðargestum og aðstoðuðu bæjarbúar og efnalaugin Straumur hátíðargesti við að þurrka fatnað og fleira. Þá var salurinn í Íþróttamiðstöð Vestmannaeyja opnaður fyrir ferðamenn sem urðu strandaglópar þar sem seinasta ferð Herjólfs var felld niður á laugardagskvöld og enga gistingu að fá gististöðum í bænum. Einnig skutu bæjarbúa skjóli yfir hluta þeirra.

Sýnir sig enn og aftur hvað Vestmannaeyingar taka vel á móti gestum sínum,“ eru lokaorð tilkynningarinnar.

Nýjustu fréttir

Bilun í Herjólfi – sérfræðingur kallaður til frá Noregi
Landfylling við Eiði: Samið við Þjótanda um fyrstu áfanga
Spurt og svarað: Ármann Halldór frá Sjálfstæðisflokknum
Arnar kom íslenska landsliðinu á EM 2026
ÍBV og FH skildu jöfn á Hásteinsvelli
Vinnslustöðin snýr vörn í sókn á krefjandi ári
Bilun í Herjólfi veldur lengri siglingatíma
Spurt og svarað: Guðni Hjöll frá Miðflokknum
Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.