Lokað fyrir heimsóknir í dag

Í ljósi hertra sóttvarnaraðgerða hefur veroð unnið að uppskiptingu á Hraunbúðum í tvo hópa heimilisfólks og starfsfólks. Þetta kemur fram í frétt á heimasíðu Hraunbúða í dag. Þar segir að þetta kalli á mikinn sveigjanleika allra sem að koma en við erum að reyna að gera okkar besta til að minnka líkurnar á að smit berist inn á heimilið.  Við erum einnig að lágmarka líkur á útbreiðslu þess á heimilinu ef inn kemur.

Það verða meiri takmarkanir á heimsóknum og við erum að stefna á ákveðna heimsóknartíma, við gefum út nánari upplýsingar um það í kvöld, en í dag munu stjórnendur Hraunbúða sitja á samráðsfundi almannavarna og hjúkrunarheimila.

En í dag mánudag þurfum við að loka fyrir heimsóknir meðan við vinnum eftir nýju skipulagi, slípum það til og ákveðum framhaldið.  Við vonum að þið sýnið því skilning þó með stuttum fyrirvara sé.  Ef það kemur sér sérstaklega illa einhvers staðar endilega hafið samband við vaktsímann s. 893-1384 eða á netfangið hraunbudir@vestmannaeyjar.is og við finnum lausnir

Nýjustu fréttir

Foreign Monkeys gefa út þriðju breiðskífu sína – „III“
Úttekt á fasteignagjöldum ársins
Mikil gróska í fimleikastarfi og mót framundan
Hlutafjáraukning Eyjaganga langt komin
Áframhaldandi hvassviðri út vikuna  
Áætlun um rýmingu Heimaeyjar eftir að Surtsey fór að gjósa
Loðnu að finna á stóru svæði
Íbúakosning samhliða næstu sveitarstjórnarkosningum
Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.