Meta magn og útbreiðslu norsk-íslenskrar síldar
Árni Friðriksson Ljósmynd: Vigfús Markússon

RS Árni Friðriksson heldur í dag af stað í leiðangurinn „Vistfræði Austurdjúps“. Frá þessu er greint á vef Hafrannsóknarstofnunnar. Eitt af meginmarkmiðum verkefnisins er að meta magn og útbreiðslu norsk-íslenskrar síldar og annarra uppsjávartegunda í Austurdjúpi og á Austur- og Norðausturmiðum. Því til viðbótar er ástand hafsins og vistkerfisins kannað, m.a. hitastig og magn átustofna. Leiðangurinn er skipulagður af vinnuhóp á vegum Alþjóða hafrannsóknaráðsins (ICES) en auk rannsóknarskipsins Árna Friðrikssonar, taka rannsóknarskip frá Noregi, Færeyjum, Danmörku og Rússlandi þátt í verkefninu. Áætlað er að leiðangurinn muni taka 20 daga.

Leiðangurinn hefur verið farinn árlega síðan 1995 og gefa niðurstöður hans m.a. eina mikilvægust tímaröð bergmálsmælinga sem notaðar eru við stofnmat og veiðiráðgjöf norsk-íslenska síldarstofnsins innan Alþjóða hafrannsóknaráðsins.

Nýjustu fréttir

Heimir Hallgrímsson heldur varnarnámskeið í Eyjum í desember
Vestmannaeyjabær leggur sex milljónir í hlutafjáraukningu í Eyjagöngum
Skálað og skrafað í Miðstöðinni – myndir
Eyjakonur vilja halda í við topplið Hauka
Glæsileg söngveisla þriggja kóra í Eyjum
Þoka hér en ekki þar
Þakkir frá Krabbavörn Vestmannaeyja
Deloitte tekur við endurskoðun Vestmannaeyjabæjar
Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.