Í dag kl. 17.00 er enn einn mikilvægur leikur hjá ÍBV í Bestu deild karla sem fara í Vesturbæinn og mæta KR í sextándu umferð deildarinnar. Eyjamenn hafa verið á góðu skriði og rétt hlut sinn verulega á töflunni. Síðast gerðu þeir 2:2 jafntefli á Hásteinsvelli og með því stigi hafði ÍBV halað inn sjö stig í þremur leikjum. Eru með tólf stig í níunda sæti eftir að hafa vermt botninn alltof lengi.
Það er því mikið í húfi fyrir Eyjamenn að styrkja stöðu sína í deildinni. KR-ingar, sem eru með 21 stig í sjötta sæti eygja enn möguleika á Evrópusæti mæta grimmir til leiks.
Næsti leikur ÍBV er á Hásteinsvelli næsta sunnudag þegar FH mætir á Hásteinsvöll. FH-ingar eru núna sæti neðar en ÍBV með ellefu stig. Það eru því tveir leikir framundan og með sigri í þeim báðum er ÍBV komið í þægilegri stöðu í Bestu deildinni.
Úr leik ÍBV og Keflavíkur síðasta sunnudag.
Mynd: Sigfús Gunnar.
Staðan:
| L | Mörk | Stig | |
| Breiðablik | 15 | 41:15 | 38 |
| Víkingur R. | 14 | 33:20 | 29 |
| KA | 15 | 28:18 | 27 |
| Stjarnan | 15 | 28:21 | 25 |
| Valur | 15 | 27:24 | 24 |
| KR | 15 | 21:23 | 21 |
| Keflavík | 15 | 27:28 | 18 |
| Fram | 15 | 28:32 | 18 |
| ÍBV | 15 | 21:29 | 12 |
| FH | 15 | 16:25 | 11 |
| Leiknir R. | 14 | 12:26 | 10 |
| ÍA | 15 | 14:35 | 8 |
|
|




















Skráðu þig á fáðu nýjustu tilkynningar fyrst
Ekki liggja fyrir nýjar mælingar
Hvað er sjóveiki?
Sjóveiki er misræmi milli skynfæra líkamans sem senda boð til heilans um hreyfingu – kyrrstöðu.
Þegar einstaklingur er úti á sjó þá nema skynjarar í vökvafylltum gangi í innra eyra hreyfingu og senda boð til heilans að einstaklingur sé á hreyfingu. Augun senda hins vegar boð til heilans um að viðkomandi sé kyrr. Heilinn á erfitt með að vinna úr þessum misvísandi og ósamræmdu upplýsingum og sendir skilaboð til magans um að tæma sig – þ.e. veldur uppköstum.
Einkenni sjóveiki eru þreyta, ógleði, svimi, svitakóf og uppköst.
Góð ráð til að hindra sjóveiki:
Lyf við sjóveiki þ.e. lyf sem slá á einkennin og fást án lyfseðils í apóteki.
Önnur ráð:
Hvar í skipinu er best að vera o.fl.
Þungun:
Þungaðar konur sem þjást af sjóveiki mega nota koffinátín í litlum skömmtum en best er að ráðfæra sig við lækni eða lyfjafræðing.
Þunguðum konum er ekki ráðlagt að nota engifer þar sem það er ekki staðfest hvort það geti haft skaðleg áhrif á fóstur.