Nokkur erill var hjá lögreglu um helgina og þó nokkuð um að aðstoða þyrfti fólk sökum ölvunarástands þess. M.a. þurfti að flytja fólk á Heilbrigðisstofnun Vestmannaeyja vegna áverka eftir byltur. Þá var eitthvað um kvartanir vegna ónæðis, bæði vegna hávaða frá heimahúsum og hávaða utan dyra.