Minning: Anna Sigríður Grímsdóttir
Anna Sigríður Grímsdóttir
Untitled 1000 X 667 Px 6
Anna Sigríður Grímsdóttir

Anna okkar, ljúfa Anna, er látin, tæplega 96 ára að aldri. Hún bar ekki aldurinn með sér, var með allt á hreinu,  fylgdist vel með og alltaf með sitt fallega bros. Það kom okkur því mjög á óvart, sem segir mikið, þegar við fengum upphringingu um snögg veikindi hennar sem leiddu til andláts skömmu síðar. Fallegar og einlægar minningar koma upp í hugann á tímamótum sem þessum, minningar sem oft voru rifjaðar upp þegar við ræddum við Önnu.

Seinasta heimsóknin okkar til hennar, tæpum tveimur dögum fyrir andlát hennar, er okkur dýrmæt sem og önnur samvera. Anna, ásamt látnum eiginmanni hennar Guðjóni Magnússyni, Gauja Manga, og fjölskylda, eru okkur mjög kær. Í gegnum tíðina hafa gleðistundirnar verið miklar, hvort heldur í sumarbústaðnum okkar sem við áttum saman forðum í Vaðnesi eða á öðrum stundum.

Þau, Anna og Gauji voru einstök og það er með miklum söknuði sem við kveðjum nú Önnu. Elsku Anna nú hefur þú hitt hann Gauja þinn og alla hina, það hlýtur að ganga eitthvað á, Ljúfa Anna sungið og eitt eða tvö „Tigga Ligga“ tekið, það heyrist okkur. Með þessum fátæklegu orðum viljum við fjölskyldan kveðja Önnu, Önnu sem gaf okkur svo mikið. Megi góður Guð blessa minningu Önnu sem og annarra sem gengnir eru. Aðstandendum sendum við okkar innilegustu samúðarkveðjur. Guð blessi ykkur öll.

Þuríður Kristín Kristleifsdóttir, Guðmundur Þorlákur Bjarni Ólafsson og fjölskylda.

Nýjustu fréttir

Birgir Nielsen um tónlistina og lífið á skólabekk  
Ráðið segir tafir sýna mikilvægi betri undirbúnings
Opnunarhátíð Sea Life – myndasyrpa
Ísfélagið á vörusýningu á Englandi
Perlað fyrir von og samstöðu í Höllinni í dag
ÍBV sigraði Stjörnuna í Eyjum
Könnun sýnir breytt fylgi flokka í Eyjum
Ræddu kvartanir og þjónustu við fulltrúa Terra
Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.