Minnir á útivistartíma barna
Vikan sem leið var mjög róleg hjá lögreglunni og afar fá útköll. Skemmtanahald helgarinnar tókst mjög vel og þurfti lögreglan ekki að hafa nein afskipti af því fólki sem var úti á lífinu.
Tvö mál komu upp í vikunni þar sem lögreglan var kölluð til vegna ölvunar. Annað var í heimahús þar sem upp kom ósætti á milli fólks og hitt vegna manns sem sem sagður var svo ölvaður að hann kæmist ekki sjálfur á fætur. Í fyrra málinu kom lögregla á sáttum og í því síðara var maðurinn aðstoðaður til síns heima. Í vikunni var svo lögregla kölluð í heimahús þar sem maður var grunaður um að hafa fíkniefni í fórum sínum, við leit hjá honum fannst poki með kannabis.
Eitt brot gagnvart umferðarlögum er skráð í dagbók lögreglunnar og var það ökumaður sem var sektaður fyrir að leggja ökutæki sínu ólöglega.
Enn vil lögreglan minna ökumenn á að kanna ljósbúnað bifreiða sinna nú þegar skammdegið grúfir yfir en lögreglan hefur orðið vör við að ljósabúnaður ökutækja sé ábótavant.
Einnig vill lögreglan skerpa á reglum um útivistartími barna og unglinga en hann breyttist frá og með 1. september s.l.
Börn, 12 ára og yngri, mega ekki vera á almannafæri eftir klukkan 20.00 nema í fylgd með fullorðnum. Börn, sem eru á aldrinum 13 til 16 ára, skulu ekki vera á almannafæri eftir klukkan 22.00, enda séu þau ekki á heimferð frá viðurkenndri skóla-, íþrótta- eða æskulýðssamkomu. Á tímabilinu 1. maí til 1. september lengist útivistartími barna um tvær klukkustundir. Aldursmörk þessa ákvæðis miðast við fæðingarár en ekki fæðingardag.
Á vef umboðsmanns barna stendur eftirfarandi:
Sömu opinberu reglur gilda því um öll börn í sama árgangi. Ýmsar ástæður eru fyrir því að takmarka útivist barna og unglinga á kvöldin. Helstar eru:
�?� Nægur svefn er mikilvæg forsenda góðrar heilsu, vellíðunar og árangurs í skólanum. �?að að vera komin heim á skikkanlegum tíma og eiga smástund heima fyrir háttinn hjálpar vaxandi fólki að fara fyrr að sofa.
�?� �?reytt og illa sofið fólk er líklegra til að lenda í slysum og óhöppum, sérstaklega þegar skyggja tekur.
�?� Börn og unglingar sem eru úti langt fram á kvöldin eru líklegri til að fara fyrr að fikta við tóbak, áfengi og fíkniefni.
�?� Alvarlegar líkamsárásir og óæskileg kynlífsreynsla eiga sér oft stað seint á kvöldin.
Reglur um útivistartíma segja til um hvað börn mega vera lengi úti en ekki hvað þau eiga að vera lengi úti. Foreldrar geta að sjálfsögðu sett sínar eigin reglur innan ramma útivistarreglna.
Reglur barnaverndarlaga um útivistartímann gilda ekki fyrir þá unglinga, sem verða 16 ára á árinu. Lög kveða því ekki á um útivistartíma 16 ára unglinga.
Börn öðlast stigvaxandi rétt til að taka ákvarðanir um eigin málefni sjálf með hækkandi aldri og auknum þroska, þar á meðal varðandi útvistartíma. �?ar sem foreldrar fara með forsjá barna og bera ábyrgð á þeim til 18 ára aldurs er það þó í höndum foreldra að ákveða útivistartíma barna á aldrinum 16 til 18 ára. Foreldrum ber þó að veita börnum tækifæri til að hafa áhrif á slíkar reglur, eins og meðal annars kemur fram í 28. gr. barnalaga. Eðlilegt er að foreldrar setji reglur um útivist 16 ára barns í samráði við barnið og þurfa reglurnar að vera sveigjanlegar, sanngjarnar og skiljanlegar barninu.

Nýjustu fréttir

Alexandra Ósk – Íþróttamaður mánaðarins
Sólarbekkurinn á Kletti vinsæll áfangastaður
Tesla opnar sex nýjar hraðhleðslustöðvar í Eyjum
Tímamót í iðn- og starfsnámi í Vestmannaeyjum
Kjarnaborun að hefjast á Landeyjasandi
Lokanir Landeyjahafnar hafa áhrif á gjaldskrá Herjólfs
Svipmyndir frá sólríkum sunnudegi
Jóhannes Grettisson rifjar upp árin á Ísleifi VE

Góð ráð fyrir siglingu

Sjóveiki

Hvað er sjóveiki?

Sjóveiki er misræmi milli skynfæra líkamans sem senda boð til heilans um hreyfingu – kyrrstöðu.

Þegar einstaklingur er úti á sjó þá nema skynjarar í vökvafylltum gangi í innra eyra hreyfingu og senda boð til heilans að einstaklingur sé á hreyfingu. Augun senda hins vegar boð til heilans um að viðkomandi sé kyrr. Heilinn á erfitt með að vinna úr þessum misvísandi og ósamræmdu upplýsingum og sendir skilaboð til magans um að tæma sig – þ.e. veldur uppköstum.

Einkenni sjóveiki eru þreyta, ógleði, svimi, svitakóf og uppköst.

Góð ráð til að hindra sjóveiki:

  • Góð hvíld daginn fyrir brottför. Að fara seint að sofa og snemma um borð í bát fer ekki vel saman ef fólk er hætt við sjóveiki.
  • Forðist áfenga drykki daginn fyrir brottför
  • Forðist djúpsteiktan, brasaðan eða saltan mat daginn fyrir siglingu.
  • Borðið góðan morgunverð. Borðið gjarnan hvítt brauð, hafragraut og ávexti þó ekki sítrus ávexti.
  • Forðist mikið koffein. Mikið kaffi er ekki það sem maganum líkar fyrir sjóferð.
  • Hafðu mat með þér á sjó. Gott er að hafa samlokur með kjúklingi eða kalkún. Kjötið er fitusnautt og brauðið er róandi í maga. Hafðu endilega eitthvað til að grípa í sem er létt í maga. Bananar eru mjög góðir til að narta í ef þú finnur fyrir ógleði en einnig er gott að hafa létt kex eða annað sem er ekki salt eða fitumikið.
  • Drekkið vel af vatni en einnig er gott er að drekka kóla drykki eða engiferöl í sjóferðinni

Lyf við sjóveiki þ.e. lyf sem slá á einkennin og fást án lyfseðils í apóteki.

  • Koffínátín – fæst án lyfseðils
  • Postafen – fæst án lyfseðils
  • Scopolamin plástur – lyfseðilsskyltEinnig má fá armbönd gegn ferðaveiki sem sumir telja að hjálpi.

Önnur ráð:

  • Engifer er jurt sem nýlega hefur fengið aukna athygli vegna þess að því er haldið fram að hún geti slegið á ógleði sem fylgir sjóveiki. Til forna tuggðu kínverskir sjómenn engiferrót til að draga úr sjóveiki. Flest lyf sem virka á ógleði verka á heilann en engifer virkar aðeins á magann. Ráðlagt er að taka 1000 mg. hylki hálftíma fyrir brottför. Einnig má taka eitt eða tvö 500 mg. hylki sem eru til viðbótar á ferðalaginu. Ekki er ráðlagt að drekka coke með engifertöflum.
  • Piparminta og te eru einnig gömul húsráð við ferðaveiki.
  • Sumum finnst betra að taka sýrujafnandi töflur, Alminox eða slíkt áður en þú heldur á sjó og þá er gott að hafa box með út á sjó.

Hvar í skipinu er best að vera o.fl.

  • Minna finnst fyrir hreyfingu og veltingi ef maður er staddur næst miðju bátsins.
  • Mörgum finnst gott að vera í kulda, t.d.að vera úti á dekki og láta vindinn leika um sig.
  • Matarlykt fer illa í þá sem hætt er við sjóveiki og einnig pústið frá bátnum.

Þungun:

Þungaðar konur sem þjást af sjóveiki mega nota koffinátín í litlum skömmtum en best er að ráðfæra sig við lækni eða lyfjafræðing.
Þunguðum konum er ekki ráðlagt að nota engifer þar sem það er ekki staðfest hvort það geti haft skaðleg áhrif á fóstur.

Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.