Á fundi bæjarráðs í dag var eitt mál á dagskrá, lokun skurðstofu Heilbrigðisstofnunar Vestmannaeyja. Framkvæmdastjóri stofnunarinnar, Gunnar K. Gunnarsson var boðaður á þennan aukafund til að fara yfir málið. „Gunnar kvað ástæðu ákvörðunarinnar vera kröfu Velferðarráðuneytisins um aukinn niðurskurð frá hausti 2012. Heilbrigðisstofnun Vestmannaeyja hefur fengið minna fjármagn til rekstursins í ár heldur en stofnunin hafði árið 2000 og er það meiri niðurskurður en sambærilegar stofnanir hafa þurft að ganga í gegnum, samkvæmt Gunnari,“ segir í fundargerð bæjarráðs.