Námskeiðið Stjórnun markaðsstarfs í Vestmannaeyjum er unnið í samstarfi við Íslandsstofu, MBL.is og Visku – �?ekkingarsetur Vestmannaeyja. �?að fer á hagnýtan hátt yfir öll helstu starfssvið markaðsstjórans, leggur mikla áherslu á netið og skilur þátttakendur eftir með verkfæri og þekkingu sem nýtist þeim strax í starfi.
Á námskeiðinu er fjallað um:
Breytingar á markaðnum, nýjustu trend, kauphegðun og stutt kynning á atferlishagfræði (e. behavioural economics) sem er að breyta skilning markaðsfólks á ákvarðanatöku neytenda.
Uppbyggingu sterkra vörumerkja.
Mótun markaðsstefnu, gerð markaðsáætlunar og farið yfir hvernig best er að skapa virði og kynna fyrir afmörkuðum markhóp.
Hvernig best er að búa til auglýsingaáætlanir. Jafnframt er farið yfir kosti og galla mismunandi samskiptaleiða (prent, útvarp, sjónvarp o.fl.).
Markaðssetningu á netinu: vefborðar, leitarvélar (Google), samfélagsmiðlar, bein markaðssetning, áhrifavaldar/ePR o.fl.
Vöru og þjónustustjórnun með áherslu á heildstætt markaðsstarf og upplifanir ásamt stuttri kynningu á aðferðafræði Design Thinking.
�??Fyrir hverja:
Námskeiðið er fyrir alla sem koma að markaðsmálum lítilla jafnt sem stórra fyrirtækja. Framkvæmdastjóra, markaðsstjóra, vörumerkjastjóra og aðra stjórnendur og starfsmenn sem koma að stjórnun markaðsstarfs.
Námskeiðið verður haldið laugardaginn 11. nóvember, kl 11 til 15:00 í Visku – þekkingarsetri Vestmannaeyja – Strandvegi 50.
Verð: 29.900 kr. per. þátttakanda.
Kennari: Guðmundur Arnar Guðmundsson, markaðsstjóri og stundarkennari í markaðsfræði og vörumerkjastjórnun á háskólastigi.