Nemendum skipt í þrennt

Hópurinn hefur fundað sjö sinnum og var strax ljóst að vegna tímaskorts var ekki hægt að bíða með ýmsa þætti í framkvæmd aldursskiptingarinnar og hóf skólastjóri þegar ýmsar aðgerðir en í náinni samvinnu við stýrihópinn.
Ákveðið var að hafa niðurstöður hópsins eins opnar og aðgengilegar og hægt var með því að kynna jafn óðum ákvarðanir. Stýrihópurinn kallaði eftir tillögum og hugmyndum frá bæjarbúum og barst fjöldi tillagna bæði skriflega og munnlega frá starfsmönnum og forráðamönnum. Var farið yfir þær allar sem að mati hópsins voru mjög góðar og vel útfærðar. Ekki voru allar tillögurnar í sömu áttina og varð stýrihópurinn því að taka skýra afstöðu.
Leitað var álits starfsmanna, forráðamanna og nemenda þannig að sem flest verði rætt og metið áður en af aldursskiptingunni verður. �?að sem stýrihópurinn hefur rætt og tekið afstöðu til fram að þessu eru eftirfarandi atriði:
Tillaga kennara er að á yngra stigi yrðu fyrsti til sjöundi bekkur og áttundi til tíundi yrðu á unglingastigi. Hópurinn segir ýmis rök gegn tillögunni og þá helst að yngra stigið þyrfti að búa við mikil þrengsli og húsnæðisskort. �?Stýrihópurinn taldi ekki ráðlegt að horfa til framtíðar með því hugarfari að nemendum eigi eftir að fækka.�?

Nemendum skipt í þrennt
Niðurstaða hans er að ráðlegast væri að skipta nemendahópnum í þrjár einingar. Á yngsta stigi yrði fyrsti til fimmti bekkur, sjötti og sjöundi bekkur á miðstigi og á unglingastigi áttundi, níundi og tíundi bekkur.
�?Tillagan byggir á því að stærð hópa er heppileg og rýmist vel í því húsnæði sem skólinn hefur yfir að ráða auk þess sem búast má við að sjötti og sjöundi bekkur geti myndað góða heild með 120 til 140 nemendum.

Nánar í Fréttum á morgun.

Nýjustu fréttir

Ófullnægjandi dýpi í Landeyjahöfn
Ekki einhugur um milljóna framlag til ÍBV
Loðnuvertíðin hafin í Eyjum
Heiðurshjónin Hjalti og Vera Björk Eyjafólk ársins 2025
Elmar áfram hjá Nordhorn-Lingen
Róbert hjá ÍBV næstu tvö árin
Framkvæmdir langt komnar í Íþróttamiðstöðinni
Skákþing Vestmannaeyja: Úrslitin ráðast í síðustu umferðunum
Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.