Neytendastofa sektaði sex rekstraraðila í Vestmannaeyjum
9e22a5b72e94ee82ecb4a4782f854d59
Vestmannaeyjar.

Neytendastofa hefur sektað sex rekstraraðila í Vestmannaeyjum en þeir eru Flamingó, Heimaey, N1 Friðarhöfn, Póley, Salka og Tvisturinn fyrir að fara ekki að fyrirmælum stofnunarinnar um verðmerkingar. Þetta kemur fram í tilkynningu á vef neytendastofu.
Í verðmerkingareftirliti er skoðað hvort söluvörur eru verðmerktar, hvar sem þær eru sýnilegar eða aðgengilegar neytendum. Einnig er skoðað hvort að verðskrá yfir framboðna þjónustu sé sýnileg. Í verðmerkingareftirliti Neytendastofu gerðu starfsmenn stofnunarinnar athugasemdir við verðmerkingar í verslununum þar sem ástand verðmerkinga var ábótavant og hvatti stofnunin til úrbóta. Þegar starfsmenn Neytendastofu komu í annað sinn voru enn gerðar athugasemdir við verðmerkingar og því hefur stofnunin nú sektað fyrirtækin.

Nýjustu fréttir

Prjónuðu 83 húfur gegn einelti
Anita tekur við sem hjúkrunarstjóri heilsugæslunnar í Eyjum
Samfélagsstyrkur Krónunnar styður þjálfun barna í Vestmannaeyjum  
Bærinn krefst skýrra svara um NSL-4
Uppselt á konukvöld handknattleiksdeildar ÍBV
Eyjarnar með um 100 tonn eftir stuttan túr
Andvari vill flýta umbótum í menntakerfinu 
N1 opnar hraðhleðslustöð í Eyjum – Herbert fyrstur til að hlaða
Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.