Niðurstaða aga­nefnd­ar óskilj­an­leg

Stjórn Hand­knatt­leiks­deild ÍBV sendi í kvöld frá sér yf­ir­lýs­ingu vegna þriggja leikja banns­ins sem Kári Kristján Kristjáns­son var úr­sk­urðaður í, vegna rauða spjalds­ins sem hann fékk í leik ÍBV og Hauka í undanúr­slit­um Íslands­móts­ins síðasta fimmtu­dag. Kári fékk rautt spjald fyr­ir brot á Heimi Óla Heim­is­syni og var í kjöl­farið úr­sk­urðaður í þriggja leikja bann.

Yf­ir­lýs­ing ÍBV:

At­vik kom upp í leik ÍBV og Hauka þann 2. maí sl. Aðdrag­and­inn að því var sá að Kári Kristján Kristjáns­son leikmaður ÍBV stöðvaði leik­mann Hauka í hraðaupp­hlaupi. Það leik­brot var ekki al­var­legt en í kjöl­far þess ræðst leikmaður Hauka, Heim­ir Óli Heim­is­son að Kára, eft­ir að leiktím­inn hafði verið stöðvaður.

Þetta sést vel á mynd­skeiðum af at­vik­inu. Í kjöl­far þess þá detta báðir leik­menn­irn­ir og þegar að þeir lenda í gólf­inu þá fer hendi eða oln­bogi Kára í and­lit eða höfuð Heim­is Óla. Heim­ir Óli lá eft­ir en Kári Kristján stóð upp. Kári Kristján fékk rautt spjald frá dómur­um vegna at­viks­ins. Í skýrslu dóm­ara til aga­nefnd­ar segja dóm­ar­ar um at­vikið: „Við það kem­ur ann­ar leikmaður Hauka að hon­um og ætl­ar að skapa illindi milli þeirra. Þá tek­ur leikmaður nr. 46 hjá ÍBV þann leik­mann niður og í fall­inu rek­ur hann oln­boga í höfuð leik­manns Hauka sem ligg­ur óvíg­ur eft­ir og kem­ur ekki meira við sögu í leikn­um.“

Fyrsta mynd­skeiðið af leikn­um, en leik­ur­inn var sýnd­ur í beinni út­send­ingu, virt­ist vera í nokkru sam­ræmi við þessa lýs­ingu að því und­an­skildu að Heim­ir Óli var ekki að „skapa illindi á milli þeirra“ en hann ræðst að Kára Kristjáni og tek­ur hann tök­um. Þetta er greini­legt og það vek­ur strax furðu að dóm­ar­ar skuli ekki refsa fyr­ir það brot. Þannig má hafa skiln­ing á því að Kári Kristján hafi fengið rautt spjald í leikn­um miðað við það sem dóm­ar­ar töldu sig sjá.

Málið fór fyr­ir aga­nefnd HSÍ en í til­kynn­ingu frá aga­nefnd kom fram að dóm­ar­ar töldu brotið beint að höfði and­stæðings­ins af miklu afli og sér­stak­lega hættu­lega aðgerð. Brotið félli þannig und­ir reglu 8.6 a og b. Aga­nefnd úr­sk­urðaði Kára Kristján þann 3. maí sl. í eins leiks bann og gaf ÍBV færi á að senda inn grein­ar­gerð vegna máls­ins.

ÍBV sendi inn grein­ar­gerð. Með grein­ar­gerðinni fylgdi mynd­skeið frá at­vik­inu frá öðru sjón­ar­horni. Síðan þá hef­ur enn eitt mynd­bandið komið fram frá öðru sjón­ar­horni en fyrsta mynd­bandið. Bæði þessi mynd­bönd sýna það skýrt að það er Heim­ir Óli sem dreg­ur Kára Kristján niður en ekki öf­ugt. Þetta er grund­vall­ar­atriði í mál­inu. Mat dóm­ara á því að það hafi verið leikmaður ÍBV sem tek­ur leik­mann Hauka niður er því aug­ljós­lega rangt.

Aga­nefnd HSÍ var með þessi gögn máls­ins þegar að nefnd­in úr­sk­urðaði í mál­inu þann 4. maí. Í úr­sk­urðinum kem­ur fram að þessi mynd­bönd frá öðru sjón­ar­horni breyti ekki mati dóm­ara á at­vik­inu. Þetta er ein­fald­lega óskilj­an­leg niðurstaða hjá aga­nefnd HSÍ. Mynd­bönd­in sýna það svart á hvítu að mat dóm­ara er rangt, hvað það varðar að leikmaður ÍBV hafi tekið leik­mann Hauka niður. Hið rétta er að það er leikmaður Hauka sem ræðst að fyrra bragði að leik­manni ÍBV og tek­ur hann síðan niður. Þá er ljóst af mynd­bönd­un­um að Kári Kristján hef­ur lítið ráðrúm til að setja hend­urn­ar fyr­ir sig á leiðinni niður. Um óhappa­til­vik er að ræða sem leikmaður Hauka á sök á en ekki leikmaður ÍBV. Þetta sést ein­fald­lega á þess­um mynd­bönd­um.

Niðurstaða aga­nefnd­ar HSÍ er eins og áður sagði óskilj­an­leg. En hún er meira en það.  Niðurstaðan er hlut­dræg. Aga­nefnd HSÍ er að úr­sk­urða leik­mann ÍBV í þriggja leikja bann í úr­slita­keppni án þess að gögn sýni fram á rétt­mæti þess. Aga­nefnd­in veit að það er ekki hægt að áfrýja þess­um úr­sk­urði. Það er eng­in rök­stuðning­ur eða um­fjöll­un um það sem sést í mynd­bönd­un­um. Aga­nefnd­in get­ur ekki rök­stutt sína niður­stöðu.

Þessu máli er ekki lokið. Við hvetj­um fjöl­miðla til að skoða þessi mynd­bönd og gefa álit sitt á því hvað gerðist.  Við hvetj­um stjórn HSÍ til að skoða þessi mynd­bönd. Þetta er rétt­læt­is­mál. Þetta er spurn­ing um að skaða hand­knatt­leiksíþrótt­ina með ákvörðun sem er röng og má telja lík­lega til að hafa mik­il áhrif á úr­slit leikja og Íslands­mótið. Það eru liðin á Íslandi sem eiga að berj­ast við hvort annað um viður­kenn­ing­ar. Við eig­um ekki að þurfa að berj­ast við hlut­dræga Aga­nefnd HSÍ sem fer ekki eft­ir rétt­um gögn­um. Það er að ger­ast núna og hún er að vinna.

F.h. Hand­knatt­leiks­deild­ar ÍBV

Davíð Þór Óskars­son, formaður

Nýjustu fréttir

Níu lið frá ÍBV tóku þátt í Símamótinu
Heimsfaraldur á fjögurra ára fresti
Eldur í Maggý VE 108 – Slökkvistarf gekk greiðlega
Vantar pláss á hafnarsvæðinu – kanna framtíð Blátinds
Andri og Elís Þór áfram í milliriðil með u-20
Eyjamenn töpuðu gegn KR á Meistaravöllum
Sóley og Örlygur Helgi eru klúbbmeistarar GV 2026
Rannsóknum fyrir Eyjagöng miðar vel áfram
Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.