Notaleg stund í Sagnheimum
Hluti fjölskyldunnar mætti á kynninguna. Sigurveig Steinarsdóttir, Guðný Guðmundsdóttir, Sesar Hersisson, Lovísa Ingibjörg Jarlsdóttir, Katrín Hersisdóttir, Sigurgeir Jónsson, Katrín Lovísa Magnúsdóttir, Hersir Sigurgeirsson, Teitur Jarl Daníelsson, Jarl Sigurgeirsson og Steiney Arna Gísladóttir.

Það var notaleg stund í á Bryggjunni í Safnahúsi á laugardaginn þegar Sigurgeir Jónsson og sonardóttir hans, Katrín Hersisdóttir kynntu bók sína, Fyrir afa. Smásögur Sigurgeirs og Katrín myndlýsir. Hún átti hugmyndina að bókinni og saman ná þau að skapa einstakt verk þar sem texti og myndir renna saman í eitt.

Sigurgeir las fyrstu sögu bókarinnar, Lakkrís og lausnargjald sem er sú sterkasta. „Tilurð fyrstu sögunnar er að ég var að labba niðri í bæ, rétt fyrir gos. Sá að utan við Apótekið var ungur nemandi minn úr Barnaskólanum. Ég stóð á bak við vegg og fylgdist með strákum sem voru að kaupa spritt fyrir pabba hans. Það fékk svo á mig að sjá þetta að úr varð smásaga. Hinar eru af ýmsum toga. Tvær svona hálfgerðar draugasögur,“ sagði Sigurgeir.

Bókin er lokaverkefni Katrínar við Kolding School of Design í Danmörku sem er þriggja ára nám. Í lokaverkefninu batt hún bókina í tveimur eintökum með forsíðu, gaf afa sínum annað og hin var sjálft lokaverkefnið. „Hann fór svo til útgefandans og bókin var sett upp í endanlegt form en ég var búin að leggja línurnar,“ sagði Katrín og bæði mega þau vera ánægð með útkomuna.

Jarl Sigurgeirsson og Ingibjörg Lovísa dóttir hans fluttu tvö lög.

Nýjustu fréttir

Í höfn og á hafi – myndasyrpa
Málþing, súpa og spjall
Eyjamenn sækja ÍR heim í bikarnum í kvöld
Hátt í 50 manns við síldarvinnslu hjá VSV
Kvörtun um stöðu ferjusamgangna fékk ekki frekari meðferð
Uppfært: Herjólfur siglir til Þorlákshafnar
Minni makrílútflutningur vegur þungt í samdrætti septembermánaðar
Subsea7 viðurkennir mistök við útlagningu vatnslagnar
Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.