Ný staðföng á ljósleiðaraneti Eyglóar
IMG_5869
Ljósleiðari lagður. Eyjafréttir/Eyjar.net: Tryggvi Már

Vegna mistaka urðu fimm staðföng eftir við tengingu á ljósleiðaranum í nokkrum götum.  Þessi fimm staðföng eru nú klár til tenginga. Eygló ehf. biður eigendur þessara húsa afsökunar á þeirri töf sem þeir hafa orðið fyrir á möguleika á ljósleiðaratengingu, umfram aðra húseigendur í þessum götum.

Birkihlíð 4, Kirkjuvegur 65, Heimagata 30, Heimagata 35, Sólhlíð 19 A-K (11 íbúðir).

Sala inn á kerfið er í höndum þeirra þjónustuveitna sem selja inn á kerfi Mílu og Tölvun ehf í Vestmannaeyjum. Íbúar ofangreindra húsa eru hvattir til að hafa samband við sína internetveitu og kanna hvort að veitan sé ekki klár í að selja þeim tengingar inn á ljósleiðarakerfi Eyglóar.

Rétt er að taka það fram að Eygló ehf. sinnir einungis þessum tveimur fjarskiptafélögum sem samið hafa við félagið. Öll notendaþjónusta og sala er í höndum fjarksiptafélaga á endursölumarkaði, segir í tilkynningu á vefsvæði Vestmannaeyjabæjar.

Nýjustu fréttir

Íþróttamaður mánaðarins – Sigurmundur Gísli Unnarsson
Ný skólalóð Sóla formlega tekin í notkun
Engin niðurstaða um frekari fjármögnun ríkisins á NSL-4
Herjólfur siglir eina ferð fyrir hádegi
Sterkur lokakafli skilaði ÍBV sigri gegn Selfossi
Emil Tumi sigurvegari í yngri flokki  
Stórum framkvæmdaráfanga að ljúka hjá Vinnslustöðinni
Gildrur notaðar til fiskmerkinga við Vestmannaeyjar
Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.