Farþegar sem hyggjast ferðast með Herjólfi föstudaginn 6. mars og fyrri hluta laugardags 7. mars eru hvattir til að fylgjast vel með tilkynningum þar sem aðstæður til siglinga eru ekki hagstæðar.
Samkvæmt tilkynningu frá Herjólfi eru allar ferðir enn á áætlun til og frá Þorlákshöfn. Hins vegar gæti þurft að gera breytingar á áætlun ef veður- og öludspá raungerist. En spáð er allt að 8 metra ölduhæð.
Farþegar eru því beðnir um að fylgjast með miðlum Herjólfs þar sem upplýsingar verða birtar um leið og breytingar liggja fyrir.