Ólafur Snorra til Ísfélagsins

Ólafur Snorrason er að láta af störfum sem framkvæmdastjóri umhverfis- og framkvæmdasviðs hjá Vestmannaeyjabæ og hefur ráðið sig til Ísfélagsins. „Það eru komin tæplega fimmtán ár og nú er ég að fara yfir í Ísfélagið,“ sagði Ólafur.

„Þar verð ég þjónustustjóri útgerðar með Eyþóri Harðar og Ólafi Guðmunds. Ég skil sáttur við bæinn en það er ágætt að breyta til eftir þennan tíma. Það hefur verið gaman að vinna hjá bænum, mikil uppbygging allan tímann og mikið um að vera. Ég hlakka líka til að byrja í nýju starfi hjá Ísfélaginu. Ég var þar í nokkra mánuði áður en ég byrjaði hjá bænum en það hefur margt breyst síðan,“ sagði Ólafur sem er vélstjóri og iðnrekstrarfræðingur að mennt.

 

Nýjustu fréttir

Bærinn eignfærir lögfræðikostnað  
ÍBV tapaði gegn Haukum
Bæjarráð hafnar bótakröfu vegna gatnagerðar við Alþýðuhús
Laxey rís í Vestmannaeyjum
Arnór bestur í tapi Karlskrona
Rangur loki tafði prófanir á sundlaugarkerfi
ÍBV sækir Hauka heim
Eyþór Harðarson efstur í prófkjöri Sjálfstæðisflokksins
Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.