Ölfus - Stuðningur við íbúa í Grindavík
DCIM100GOPRO
DCIM\100GOPRO

Á fundi sínum í fyrradag samþykkti bæjarstjórn Ölfuss næstu skref í stuðningi við íbúa Grindavíkur með því að samþykkja forgang þeirra við úthlutun lóða. Unnið er út frá því að hægt verði að úthluta lóðum fyrir allt að 127 heimili á næstu mánuðum.

Fyrir liggur að á seinustu vikum hefur umtalsverður fjöldi Grindvíkinga leitað eftir lóðum í Þorlákshöfn. Í öllum tilvikum hefur verið leitað eftir einbýlishúsa- og eða parhúsalóðum sem fólk hefur hug á að byggja sjálft á. Sveitarfélagið Ölfus vill með öllum leiðum sýna nágrönnum sínum stuðning og leggur áherslu á að sá vilji sjáist í verki.

Með það að leiðarljósi að styðja við Grindvíkinga á tímum náttúruhamfara samþykkir bæjarstjórn eftirfarandi:

Stefnt er að því að auglýsa næsta áfanga við svokallað Vesturberg í mars. Þar er um að ræða lóðir fyrir 10 einbýlishús, 10 parhús, og 1 raðhús. Alls verða þar því lausar lóðir fyrir 33 íbúðir. Hægt verður að hefja byggingarframkvæmdir á þessum lóðum í apríl. Bæjarstjórn samþykkir að veita fólki með lögheimili í Grindavík forgang að þessum lóðum. Verði umframeftirspurn við úthlutun þessara lóða mun Sveitarfélagið Ölfus tafarlaust ráðast í undirbúning næsta áfanga við Vesturbergið og auglýsa þær lóðir á sömu forsendum. Þar gæti orðið mögulegt að úthluta lóðum fyrir allt að 13 einbýlishús og 7 parhús eða samtals 27 íbúðir. Í heildina gæti því orðið um að ræða lóðir fyrir allt að 60 heimili sem yrðu tilbúnar til framkvæmda  á næstu mánuðum.

 Verði enn áfram eftirspurn eftir lóðum eftir úthlutun þessara lóða verður frekari framkvæmdum flýtt enn frekar og stefnt að því að sem fyrst verði hægt að úthluta til viðbótar allt að 18 einbýlishúsalóðum 9 raðhúsalóðum og 9 parhúsalóðum. Þar verði því um að ræða 67 íbúðir.

 Samtals verði því mögulegt að úthluta lóðum fyrir allt að 127 íbúðir svo fljótt sem verða má.

Staðan fordæmalaus

„Staðan í Grindavík er fordæmalaus og það kallar á fordæmalausar ákvarðanir. Áður höfum við samþykkt formlega að veita íbúum Grindavíkur allan rétt til samræmis við íbúa hér hvað varðar leikskólapláss, grunnskólavisst, íbúðir aldraðra og fl. Nú teljum við húsnæðismál til lengri tíma brýnust.

 Grindavík og Þorlákshöfn eru um margt lík samfélög. Þetta eru samfélög sem trúa því af einlægni að verðætasköpun sé undirstaða velferðar. Rekstur sveitarfélagsins hér er því traust og innviðir sterkir, eins og lengi hefur verið í Grindavík. Fyrirtækjum í og við Þorlákshöfn fjölgar hratt og við erum núna með í undirbúningi byggingu á nýjum leikskóla, stækkun grunnskóla, byggingu knattspyrnuhúss, menningarsal, nýjan miðbæ og margt fl. Í þeirri stöðu teljum við sanngjarnt og eðlilegt að gera allt sem við getum til að bjóða okkur sem valkost fyrir Grindvíkinga,“ Elliði Vignisson, bæjarstjóri Ölfuss.

Nýjustu fréttir

Löndun Breka VE í Grundarfirði – flókið verkefni og fumlaus vinnubrögð
Gong slökun, endurstilling í hraða nútímans
Bæjarráð gagnrýnir samgönguáætlun
Elliði með fimm mörk í stórsigri Íslands
Herjólfur í Þorlákshöfn í dag og á morgun
Orkumálin til skoðunar hjá ráðherra
Dagvistunarmál til umræðu á fundi fræðsluráðs
Veit Inga hvað hún syngur?

Góð ráð fyrir siglingu

Sjóveiki

Hvað er sjóveiki?

Sjóveiki er misræmi milli skynfæra líkamans sem senda boð til heilans um hreyfingu – kyrrstöðu.

Þegar einstaklingur er úti á sjó þá nema skynjarar í vökvafylltum gangi í innra eyra hreyfingu og senda boð til heilans að einstaklingur sé á hreyfingu. Augun senda hins vegar boð til heilans um að viðkomandi sé kyrr. Heilinn á erfitt með að vinna úr þessum misvísandi og ósamræmdu upplýsingum og sendir skilaboð til magans um að tæma sig – þ.e. veldur uppköstum.

Einkenni sjóveiki eru þreyta, ógleði, svimi, svitakóf og uppköst.

Góð ráð til að hindra sjóveiki:

  • Góð hvíld daginn fyrir brottför. Að fara seint að sofa og snemma um borð í bát fer ekki vel saman ef fólk er hætt við sjóveiki.
  • Forðist áfenga drykki daginn fyrir brottför
  • Forðist djúpsteiktan, brasaðan eða saltan mat daginn fyrir siglingu.
  • Borðið góðan morgunverð. Borðið gjarnan hvítt brauð, hafragraut og ávexti þó ekki sítrus ávexti.
  • Forðist mikið koffein. Mikið kaffi er ekki það sem maganum líkar fyrir sjóferð.
  • Hafðu mat með þér á sjó. Gott er að hafa samlokur með kjúklingi eða kalkún. Kjötið er fitusnautt og brauðið er róandi í maga. Hafðu endilega eitthvað til að grípa í sem er létt í maga. Bananar eru mjög góðir til að narta í ef þú finnur fyrir ógleði en einnig er gott að hafa létt kex eða annað sem er ekki salt eða fitumikið.
  • Drekkið vel af vatni en einnig er gott er að drekka kóla drykki eða engiferöl í sjóferðinni

Lyf við sjóveiki þ.e. lyf sem slá á einkennin og fást án lyfseðils í apóteki.

  • Koffínátín – fæst án lyfseðils
  • Postafen – fæst án lyfseðils
  • Scopolamin plástur – lyfseðilsskyltEinnig má fá armbönd gegn ferðaveiki sem sumir telja að hjálpi.

Önnur ráð:

  • Engifer er jurt sem nýlega hefur fengið aukna athygli vegna þess að því er haldið fram að hún geti slegið á ógleði sem fylgir sjóveiki. Til forna tuggðu kínverskir sjómenn engiferrót til að draga úr sjóveiki. Flest lyf sem virka á ógleði verka á heilann en engifer virkar aðeins á magann. Ráðlagt er að taka 1000 mg. hylki hálftíma fyrir brottför. Einnig má taka eitt eða tvö 500 mg. hylki sem eru til viðbótar á ferðalaginu. Ekki er ráðlagt að drekka coke með engifertöflum.
  • Piparminta og te eru einnig gömul húsráð við ferðaveiki.
  • Sumum finnst betra að taka sýrujafnandi töflur, Alminox eða slíkt áður en þú heldur á sjó og þá er gott að hafa box með út á sjó.

Hvar í skipinu er best að vera o.fl.

  • Minna finnst fyrir hreyfingu og veltingi ef maður er staddur næst miðju bátsins.
  • Mörgum finnst gott að vera í kulda, t.d.að vera úti á dekki og láta vindinn leika um sig.
  • Matarlykt fer illa í þá sem hætt er við sjóveiki og einnig pústið frá bátnum.

Þungun:

Þungaðar konur sem þjást af sjóveiki mega nota koffinátín í litlum skömmtum en best er að ráðfæra sig við lækni eða lyfjafræðing.
Þunguðum konum er ekki ráðlagt að nota engifer þar sem það er ekki staðfest hvort það geti haft skaðleg áhrif á fóstur.

Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.