Óli Gränz - Fjölsótt skemmtun án áfengis
2. desember, 2025
Á ballið mættu upp undir 500 manns, eða 10% af bæjarbúum, og vakti þetta mikla athygli. Allir voru bláedrú nema einn sem vínlykt fannst af.

„Óli Gränz“ er heiti endurminninga Carls Ólafs Gränz, iðnmeistara og gleðigjafa, frá Vestmannaeyjum. Hann fæddist í Eyjum 16. janúar 1941 og hefur lagt gjörva hönd á margt á lífsleiðinni. Var ungur til sjós og síðar farsæll iðnaðarmaður, rak bílaleigu og verslun, settist á Alþingi og allsherjarþing Sameinuðu þjóðanna, var bókaútgefandi á heimsvísu og mikilvirkur í félagsmálum. Óli segir frá æsku sinni og uppvexti, þátttöku í atvinnulífi og pólitík, einkamálum, prakkarastrikum og eldgosunum í Surtsey og Heimaey. Bókin er 315 bls. og prýdd fjölda mynda. Guðni Einarsson skráði. Útgefandi er Bókaútgáfan Hólar.

 

AA Haustgrín 2
Boðið var upp á kvöldverð, skemmtiatriði og dansleik. Kostnaði var mjög stillt í hóf. Bæjarstjórnin kom ásamt mökum og einnig aðrir helstu framámenn bæjarins.

 

„Ég var valinn til formennsku í ýmsum nefndum í AA-samtökunum, t.d. skemmtinefndum, ferðanefndum, húsnefnd o.fl. Haustið 1975 ákvað ég að halda áfengislaust ball í Vestmannaeyjum. Ég fór til Óla Ísfeld, framkvæmdastjóra Samkomuhúss Vestmannaeyja, og leigði húsið fyrir ballið, Haustgrín 2, þann 21. nóvember þetta haust. Það hafði enginn trú á þessu þegar ég fékk hugmyndina. Boðið var upp á kvöldverð, skemmtiatriði og dansleik. Kostnaði var mjög stillt í hóf. Bæjarstjórnin kom ásamt mökum og einnig aðrir helstu framámenn bæjarins. Það mættu upp undir 500 manns, eða 10% af bæjarbúum, og vakti þetta mikla athygli. Allir voru bláedrú nema einn sem vínlykt fannst af. Óli Ísfeld sagði við mig eftir ballið að þetta hefði verið í eina skiptið í tíð hans sem haldið var ball í Höllinni án þess að það brotnaði eitt einasta glas.

 

AA Haustgrín 2
Óli undirbjó skemmtiatriði og samdi meðal annars tvo leikþætti. Í öðrum léku þeir Grétar Pétursson og Þórarinn Grímsson.

 

Ég undirbjó skemmtiatriði og samdi meðal annars tvo leikþætti. Í öðrum léku þeir Grétar Pétursson og Þórarinn Grímsson. Grétar, sem æfði lyftingar sér til heilsubótar og var vel á sig kominn, rembdist við að lyfta stöng með stórum lóðum og stundi mikið og öskraði af áreynslunni. Ég hafði útbúið lyftingastöngina úr rafmagnsröri úr plasti og lóðin úr frauðplasti. Svo málaði ég þetta svo að það leit mjög eðlilega út. Stöngin svignaði þegar Grétar lyfti og þegar hann lét hana detta var ég með stóran tréhnall á bak við og lét hann vaða í gólfið svo það buldi í.

Þórarinn lék væskilslega ræstingakonu sem kom inn með skúringafötu í annarri hendi og heimtaði að þetta drasl, lóðin, yrði tekið af gólfinu. Lyftingamaðurinn var ekki til í það svo ræstingakonan tók stöngina með annarri hendi og kastaði draslinu á bak við tjaldið. Þá buldi heldur betur í gólfinu! Þetta vakti mikla kátínu.

 

Flottasta atriðið. Siggi Vídó tók að sér að róla gestum til skemmtunar.

 

Í loftinu á salnum voru tveir sterkir kengir. Aflaskipstjórinn Siggi Vídó var þéttur á velli en kattliðugur. Hann tók að sér að róla gestum til skemmtunar. Við festum sex metra háa rólu í kengina og stöfluðum svo upp borðum aftast á sviðinu. Ljósin voru slökkt og Siggi prílaði klæddur nærbol og stuttbuxum upp á borðin og settist í róluna. Hann hélt á fjórum logandi stjörnuljósum í hvorri hendi þegar rólunni var sleppt. Það var mjög tignarlegt að sjá hann taka sveifluna yfir endilangan, myrkvaðan salinn, fullsetinn af gestum. Svo rólaði hann fram og aftur. Sveiflan var svo mikil að minnstu munaði að hann snerti svalirnar hinum megin í salnum.  Fólki brá við að sjá þetta og það tók andköf af undrun og hrifningu. Við ætluðum varla að ná því að stoppa Sigga þegar okkur fannst nóg komið. Það hafði ekki gefist tími til að prófa atriðið fyrir skemmtunina svo að þetta var bæði generalprufa og frumsýning! Þetta var að mínu mati flottasta atriðið.

AA Haustgrín 2
Borðin svignuðu undan veisluföngunum.

 

Auk þessa voru fjölbreytt tónlistaratriði og skemmtuninni lauk með dúndrandi dansleik langt fram á nótt. Í hljómsveitinni spilaði Hjalli á trompet, Maggi Emils á trommur og Einar klink, Einar Sigurfinnsson, söng af sinni alkunnu snilld svo að nokkrir séu nefndir. Sérsvið hans var að túlka lög Fats Domino og gerði hann það listavel. Skemmtunin var mjög vel heppnuð og sannfærði marga um að það væri alveg hægt að skemmta sér án áfengis. Ég er viss um að þetta hjálpaði mörgum til að ná sér á strik og það fjölgaði mikið í AA-samtökunum í Eyjum eftir skemmtunina. Deddi Ingimundar, Bernharð Ingimundarson, tók að sér að halda utan um peningamálin og þetta framtak stóð alveg undir sér.”

 

Facebook
X
LinkedIn
Pinterest
Reddit
Email
Print
Skoða blaðið á netinu
EF 12 Tbl Forsidan
12. tbl. 2025

NÝBURAR

Aaro Orrason Vähätalo
30. ágúst 2025
Drengur
Turku Finnland
Laura Vähätalo og Orri Arnórsson

NÝBURAR

76e2af77 02d9 48eb B73a 24c32e2403ac
4. janúar 2025
Drengur
Landspítalinn, Reykjavík.
Katrín Rós Óðinsdóttir og Sæþór Örn Garðarsson.

NÝBURAR

Drengur
3. desember 2024
Drengur
Kaupmannahöfn
Selma Jónsdóttir og Matthías Óskarsson

NÝBURAR

Drengursnorrason
23. október 2024
Drengur
Landspítalinn, Reykjavík.
Svanhildur Eiríksdóttir og Sindri Sigfússon

NÝBURAR

Lovisu
8. október 2024
Stúlka
Landspítalinn, Reykjavík.
Lovísa Jóhannsdóttir og Jökull Andri Sigurðsson

NÝBURAR

462560821 8781643355208571 772013136079801246 N
17. október 2024
Drengur
Landspítalinn, Reykjavík.
Aníta Björk Friðriksdóttir og Sigurbjörn Þórður Árnason.

NÝBURAR

Tandri
13. september 2024
Drengur
Hsu, Vestmannaeyjum.
Dagur Arnarsson og Svava Tara Ólafsdóttir.

NÝBURAR

Bfec0ecf E4f8 466a 89f9 94c607ba1ec5
24. ágúst 2024
Drengur
Landspítalinn, Reykjavík.
Óskar Elías Zoega Óskarsson og Díana Ólafsdóttir

NÝBURAR

Natan Orn
14. ágúst 2024
Drengur
Landspítalinn, Reykjavík.
Þórey Lúðvíksdóttir og Elías Skæringur Guðmundsson

NÝBURAR

F4c5612c Ae8a 4d77 B83d C5f14f2007fe
26. september 2024
Stúlka
Landspítalinn, Reykjavík.
Þorgeir Þór Friðgeirsdóttir og Elín Inga Halldórsdóttir

NÝBURAR

Moller
20. september 2024
Drengur
Landspítalinn, Reykjavík
William Thomas Möller og Jenný Guðnadóttir.

NÝBURAR

E50c5f3f Ddd5 4ee2 8685 Dad7e0e417ad
2. ágúst 2024
Stúlka
Fæðingadeild HVE, Akranes
Sigurdís Egilsdóttir og Gunnlaugur Örn Guðjónsson

NÝBURAR

Drengur Hristov
2. ágúst 2024
Drengur
Landspítalinn, Reykjavík
Todor Hristov og Marta Möller

NÝBURAR

Nýburi
30. júlí 2024
Stúlka
Heimahúsi á Dalvík
Alexandra Ósk Gunnarsdóttir og Brynjar Ingi Óðinsson

NÝBURAR

Nýfædd stúlka.
4. júlí 2024
Stúlka
Landspítalinn, Reykjavík
Theodóra Ágústsdóttir & Carlos Guani

NÝBURAR

IMG 3174
15. júlí 2024
Drengur
Balingen, Þýskalandi
Sandra Erlingsdóttir og Daníel Þór Ingason

NÝBURAR

tryggvason
30. júní 2024
Drengur
Reykjavík
Tryggvi Stein Ágústsson og Guðný Erla Guðnadóttir

NÝBURAR

nyburar
4. júlí 2024
Drengur
Reykjavík
María Rós Sigurbjörnsdóttir og Bjarni Heimir Kristinsson

NÝBURAR

jon
20. júní 2024
Drengur
Landspítalinn, Reykjavík
Logi Snædal Jónsson og Svala Björk Hólmgeirsdóttir

NÝBURAR

Admin Ajax
10. júlí 2024
Stúlka
Landspítalinn, Reykjavík
Unnur Birna Hallgrímsdóttir og Guðmundur Sundström
Mest lesið
Fylgstu með

Skráðu þig á fáðu nýjustu tilkynningar fyrst

Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.