Ólíkt hafast þau að

Samgöngur til og frá Vestmannaeyjum eru eitt mikilvægasta hagsmunamál Vestmannaeyinga og því mikilvægt að bæjarstjórn þeirra sinni því. Fyrir þremur árum síðan kom nýr Herjólfur til landsins. Það tók mörg ár að hefja smíði skipsins þó það væri ein meginforsenda byggingar Landeyjahafnar. Margir lögðust gegn smíðinni meðal annars margir eyjamenn, þingmenn, skipstjórar Herjólfs og innviðaráðherra svo einhverjir eru nefndir. Það var hins vegar fyrir einurð þáverandi meirihluta og reyndar bæjarstjórnarinnar allrar að það náðist að hefja smíðina. Nýi Herjólfur hefur sannað ágæti sitt og siglingar til Landeyjahafnar hafa aukist verulega. Margir eru líka á því að nýi Herjólfur fari betur með farþega en sá gamli þrátt fyrir harkspár sumra. Nú vilja líklega flestir fyrrum andstæðingar nýja Herjólfs ekkert kannast við þetta.

Það er ekki nóg að fá nýjan Herjólf eins og síðastliðinn vetur sýndi fram á því í aftakaveðrum grynnkar fullmikið fyrir skipið milli garðshausa. Þetta var vitað og því var hafist handa, fyrir fjórum árum, að skapa aðstöðu til að geta dýpkað frá landi. Sumarið 2019 var hætt við framkvæmdir í miðum klíðum og 700 milljónir króna fóru út í buskann. Auðvitað voru margir á móti þessari framkvæmd og skiptar skoðanir eins og ávallt hefur verið um Landeyjahöfn. Skipstjórar Herjólfs, sumir eyjamenn, innviðaráðherra og skópíur hans lögðust gegn þessu. Ólíkt fyrrverandi meirihluta sem keyrði smíði nýs Herjólfs í gegn þá stóð núverandi meirihluti ekki í lappirnar og lagði upp laupana. Ekkert hefur verið gert í fjögur ár í Landeyjahöfn og það geta eyjamenn þakkað  núverandi meirihluta. Nú er verið að reyna að bjarga þessu klúðri með því að tala um að fá öflugra dýpkunarskip, auðvitað mun það hjálpa til, en athuganir sýndu og reynslan sannaði að suma vetur koma ekki veður til dýpkunar samfellt í nokkrar vikur. Hvað þá? Það voru fagleg sjónarmið sem réðu því að ákveðið var að dýpka frá landi því hægt er að dýpka frá landi þó grunnt sé og ölduhæð há. Það var ekki nóg með að núverandi meirihluti gerði ekki neitt heldur studdi hann einnig að hætt var við framkvæmdir til að bæta Landeyjahöfn en það góða við lýðræði er að nú eru kosningar handan við hornið og þá verður unnt að kjósa nýjan meirihluta.

Sigurður Áss Grétarsson

Nýjustu fréttir

Vestmannaeyjar í fókus hjá bresku sjávarútvegsblaði
Eyjamaðurinn: Elís Þór
Miðflokkurinn býður fram í Eyjum
Kyrrðarbæn í dag
Tveir handteknir í tengslum við andlát
Vera Lífsgæðasetur og LifeLine Health hefja samstarf
Andrea Jacobsen til liðs við ÍBV
Tafir vegna bilunar

Góð ráð fyrir siglingu

Sjóveiki

Hvað er sjóveiki?

Sjóveiki er misræmi milli skynfæra líkamans sem senda boð til heilans um hreyfingu – kyrrstöðu.

Þegar einstaklingur er úti á sjó þá nema skynjarar í vökvafylltum gangi í innra eyra hreyfingu og senda boð til heilans að einstaklingur sé á hreyfingu. Augun senda hins vegar boð til heilans um að viðkomandi sé kyrr. Heilinn á erfitt með að vinna úr þessum misvísandi og ósamræmdu upplýsingum og sendir skilaboð til magans um að tæma sig – þ.e. veldur uppköstum.

Einkenni sjóveiki eru þreyta, ógleði, svimi, svitakóf og uppköst.

Góð ráð til að hindra sjóveiki:

  • Góð hvíld daginn fyrir brottför. Að fara seint að sofa og snemma um borð í bát fer ekki vel saman ef fólk er hætt við sjóveiki.
  • Forðist áfenga drykki daginn fyrir brottför
  • Forðist djúpsteiktan, brasaðan eða saltan mat daginn fyrir siglingu.
  • Borðið góðan morgunverð. Borðið gjarnan hvítt brauð, hafragraut og ávexti þó ekki sítrus ávexti.
  • Forðist mikið koffein. Mikið kaffi er ekki það sem maganum líkar fyrir sjóferð.
  • Hafðu mat með þér á sjó. Gott er að hafa samlokur með kjúklingi eða kalkún. Kjötið er fitusnautt og brauðið er róandi í maga. Hafðu endilega eitthvað til að grípa í sem er létt í maga. Bananar eru mjög góðir til að narta í ef þú finnur fyrir ógleði en einnig er gott að hafa létt kex eða annað sem er ekki salt eða fitumikið.
  • Drekkið vel af vatni en einnig er gott er að drekka kóla drykki eða engiferöl í sjóferðinni

Lyf við sjóveiki þ.e. lyf sem slá á einkennin og fást án lyfseðils í apóteki.

  • Koffínátín – fæst án lyfseðils
  • Postafen – fæst án lyfseðils
  • Scopolamin plástur – lyfseðilsskyltEinnig má fá armbönd gegn ferðaveiki sem sumir telja að hjálpi.

Önnur ráð:

  • Engifer er jurt sem nýlega hefur fengið aukna athygli vegna þess að því er haldið fram að hún geti slegið á ógleði sem fylgir sjóveiki. Til forna tuggðu kínverskir sjómenn engiferrót til að draga úr sjóveiki. Flest lyf sem virka á ógleði verka á heilann en engifer virkar aðeins á magann. Ráðlagt er að taka 1000 mg. hylki hálftíma fyrir brottför. Einnig má taka eitt eða tvö 500 mg. hylki sem eru til viðbótar á ferðalaginu. Ekki er ráðlagt að drekka coke með engifertöflum.
  • Piparminta og te eru einnig gömul húsráð við ferðaveiki.
  • Sumum finnst betra að taka sýrujafnandi töflur, Alminox eða slíkt áður en þú heldur á sjó og þá er gott að hafa box með út á sjó.

Hvar í skipinu er best að vera o.fl.

  • Minna finnst fyrir hreyfingu og veltingi ef maður er staddur næst miðju bátsins.
  • Mörgum finnst gott að vera í kulda, t.d.að vera úti á dekki og láta vindinn leika um sig.
  • Matarlykt fer illa í þá sem hætt er við sjóveiki og einnig pústið frá bátnum.

Þungun:

Þungaðar konur sem þjást af sjóveiki mega nota koffinátín í litlum skömmtum en best er að ráðfæra sig við lækni eða lyfjafræðing.
Þunguðum konum er ekki ráðlagt að nota engifer þar sem það er ekki staðfest hvort það geti haft skaðleg áhrif á fóstur.

Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.