Undanfarnar tvær vikur hef ég verið í tölvupóstsamskiptum við Ólínu Þorvarðardóttur, þingmann, vegna þess áfalls að Bergur-Huginn hefur verið seldur úr bæjarfélaginu og hvort einhverra viðbragða sé að vænta að hálfu ríkisstjórnarinnar, þ.e. hvort gripið verði til einhverra mótvægisaðgerða. Einnig hef ég reynt að fá svör við því hvað, eignaupptaka (fyrning), alls konar pólitískar úthlutanir (pottakerfi), stofnun nýs ósanngjarns veiðikerfis (strandveiðikerfis), taka frá einum og rétta öðrum (skötuselsreglugerð), landsbyggðarskattur (veiðigjöld) o.fl. o.fl., geri til að tryggja hag almennings í Eyjum.