Opnun sérhæfðra dagdvalarrýma fyrir einstaklinga með heilabilunarsjúkdóm og ráðning iðjuþjálfa

Fimm sérhæfð dagdvalarrými fyrir einstaklinga með heilabilunarsjúkdóm hafa verið opnuð í dagdvölinni og bætast við þau 10 almennu dagdvalarrými sem fyrir voru. Dagdvalarrými fyrir einstaklinga með heilabilunarsjúkdóm eru sérstök dagdvalarrými sem ætluð eru einstaklingum sem greinst hafa með heilabilunarsjúkdóm. Þjónustan miðar að því að rjúfa einangrun notenda, gefa þeim kost á að umgangast jafningja, taka þátt í daglegum athöfnum og þjálfa hug og hönd eins og geta hvers og eins býður. Sérhæfðu dagdvalarrýmin bjóða upp á allt sem almennu dagdvalarrýmin bjóða upp á, en þar að auki fá einstaklingarnir sem eru í sérhæfðu rýmunum aukalega vitsmunalega, líkamlega og félagslega þjálfun sem stjórnað er af iðjuþjálfa.

Guðrún Jóhanna Iðjuþjálfi

Til að uppfylla skilyrði fyrir þessi sérhæfðu dagdvalarrými hefur Vestmannaeyjabær gert samning við Guðrúnu Jóhönnu hjá Heimastyrk. Guðrún Jóhanna er iðjuþjálfi með norrænt meistaranám í öldrunarfræðum. Guðrún Jóhanna mun stýra endurhæfingarþjónustunni við notendur sérhæfðu dagdvalarrýmanna.

Þetta er búið að vera langt ferli og erum við mjög glöð að þetta sé orðið að veruleika.
Thelma Rós Tómasdóttir,
verkefnastjóri öldrunarþjónustu

Nýjustu fréttir

Róbert hjá ÍBV næstu tvö árin
Framkvæmdir langt komnar í Íþróttamiðstöðinni
Skákþing Vestmannaeyja: Úrslitin ráðast í síðustu umferðunum
Yfir 90% íbúa ánægðir
Bríet kemur fram á Hljómey
Sæunn Magnúsdóttir gengur til liðs við Miðflokkinn
Framkvæmdir hafnar við Áshamar 77  
Dýptarmælingar fyrirhugaðar í Landeyjahöfn
Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.