ORA er til­nefnd­ur til verðlaunameð með vöru úr úr hágæða loðnu­hrogn­um frá Ísfé­laginu
Íslenski mat­væla­fram­leiðand­inn ORA er til­nefnd­ur til verðlauna á sjáv­ar­út­vegs­sýn­ing­unni í Bost­on. Var­an sem fyr­ir­tækið er til­nefnt fyr­ir nefn­ist �??Crea­my masago bites�??, sem út­lagst gæti á ís­lensku sem rjóma­kennd­ir loðnu­hrogna­bit­ar. Er var­an til­nefnd í flokki bestu smá­sölu­vara árs­ins. www.mbl.is greindi frá.
Eyjapeyjinn Jó­hann­es Eg­ils­son, út­flutn­ings­stjóri ORA sagði það er mik­il viður­kenn­ing að fá til­nefn­ingu sem þessa en það eru ein­ung­is tólf vör­ur sem til­nefnd­ar eru á sýn­ing­unni ár hver.�??Crea­my Masago Bites�?? er ljúf­feng­ur og girni­leg­ur for­rétt­ur sem tek­ur inn­an við 10 mínut­ur að út­búa. Rétt­ur­inn sam­an­stend­ur af þrem­ur vör­um, masago sem unnið er úr hágæða loðnu­hrogn­um frá Ísfé­lagi Vest­manna­eyja, laxamús sem unn­in er úr fersk­um ís­lensk­um eld­islaxi og ses­am-brauðkexi. Hrogn­un­um og laxamús­inni er blandað sam­an með smá dass af ís­lensku skyri þannig að úr verður rjóma­kennd masago-laxamús sem síðan er sett ofan á sea­sam-brauðkex og skreytt með fersku masagoi, dilli og ís­lensku sjáv­ar­salti. Rétt­ur­inn er afar ein­fald­ur í und­ir­bún­ingi, lít­ur girni­lega út og er sér­lega bragðgóður, seg­ir Jó­hann­es, full­ur til­hlökk­un­ar að kynna Iceland’s Finest-vöru­lín­una í Bost­on.

Nýjustu fréttir

Landað í Grindavík og í Eyjum
Þarf vinnuskóli að vera vesen?
„Við erum að tala um 18 íbúðir, ekki eitt einbýlishús“
Veisla hjá Bjössa í 20 ár
Allir bæjarfulltrúar sameinast um kröfur til ríkisstjórnarinnar
TM mótið hefst á morgun
Afmælisdagarnir gáfu ömmunni milljónir
Koddaslagur systranna skilaði 500 þúsund til Krabbavarnar
Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.