Peyjarnir í Orkumótinu hófu leik stundvíslega í morgun kl. 08:20. Vel viðrar til knattspynuiðkunar í Eyjum í dag. Hæg gola rétt til að félagsfánarnir blakti, vellir létt rakir og sól skín annað slagið. Orkumótið hefur verið haldið árlega frá árinu 1984. Á mótinu keppir 6. flokkur karla, eldra ár og hafa margir af bestu knattspyrnumönnum landsins tekið þátt í mótinu á sínum yngri árum.
Þið getið fylgst með gangi mála í heimasíðu mótsins – undir “leikir og úrslit” þar sem staða leikja er lifandi.
Skráðu þig á fáðu nýjustu tilkynningar fyrst