Áhugamenn um virkjun orku, hvort sem um er að ræða virkjun bæjarlækjar, hitareits, vindgnauðs, sólar eða jafnvel fjóshaugs, geta sótt námskeiðið Orkubóndinn sem Nýsköpunarmiðstöð Íslands stendur fyrir í Eyjum í dag, þriðjudaginn 23. mars. Á námskeiðinu hér í Eyjum verður sérstök áhersla lögð á virkjun með varmadælum, vindmyllum og einnig með öldum og sjávarföllum.