Óska eftir að 8.000 tonnum verði bætt við í ýsu

Landssamband smábátaeigenda hefur sent Svandísi Svavarsdóttur sjávarúvegs- og landbúnaðarráðherra bréf þar sem óskað er eftir að 8.000 tonnum verði bætt við leyfilegan heildarafla í ýsu.

Bréf LS:

„Landssamband smábátaeigenda (LS) hefur á síðustu mánuðum fylgst náið með ýsuveiðum, m.t.t. útbreiðslu og ástandi hennar. Í því skyni hefur LS leitað til skipstjóra og sjómanna á öllum stærðum og gerðum skipa. Skemmst er frá því að segja að óþarft var að samræma sjónarmiða viðmælenda þar sem þau voru öll á einn veg:

• ýsa um allan sjó
• sjáum ekkert rof í stærðarsamsetningu
• fiskurinn vel haldinn

Jafnframt ákvað LS að bíða niðurstaðna úr haustralli Hafrannsóknastofnunar og sjá hvort þar væri ekki samhljómur með skoðunum ofangreindra.“

Sú vissa sem nú liggur fyrir staðfestir þá skoðun LS að ákvörðun fv. sjávarútvegsráðherra að draga 8.000 tonn frá niðurstöðu aflareglu í ýsu hafi ekki verið rétt. Ákvörðunina byggði ráðherra á að heimildin hefði verið viðbót við áður ákveðinn leyfilegan heildarafla og ætti því að koma til frádráttar á ráðgjöf Hafrannsóknastofnunar á næsta fiskveiðiári (2021/2022).

Þegar grannt er skoðað er það óumdeilt að aflaregla í ýsu gaf niðurstöðuna 50.429 tonn. Í skýrslu Hafrannsóknastofnunar dags. 15. júní 2021 segir:

„Hafrannsóknastofnun og Alþjóðahafrannsóknaráðið leggja til, í samræmi við aflareglu íslenskra stjórnvalda, að afli fiskveiðiárið 2021/2022 verði ekki meiri en 50.429 tonn.“

Landssamband smábátaeigenda fer hér með fram á að leyfilegur heildarafli í ýsu á yfirstandandi fiskveiðiári verði tafarlaust aukinn um 8.000 tonn, verði eins fram hefur komið 50.429 tonn.

Bent skal á að málefnið þolir enga bið. Ákvörðunin hefur valdið miklum kostnaðarauka við þorskveiðar þar sem hann er ekki hægt að veiða á hefðbundnum miðum vegna mikillar ýsu sem þar er. Hlutfall þorsks og ýsu í ráðgjöf Hafrannsóknastofnunar er nú 19% en verður við breytinguna 23%. Algengt er á hefðbundnum þorskmiðum þegar veitt er með línu eða botnvörpu að blöndunin við veiðarnar sé á bilinu 33-40%.

Eins og venja er hefur ráðherra áframsent erindi LS til umsagnar hjá Hafrannsóknastofnun og mun í framhaldi af því taka ákvörðun um erindið.

Nýjustu fréttir

Herjólfur til Landeyjahafnar seinni partinn
Sigurjón og Auðunn jafnir efstir á Skákþingi Vestmannaeyja 2026
Emil Gautason í lokahóp u-16
900 krónur urðu að 45 milljónum!
Vara við snjóhengjum og grýlukertum
Staðan í Viðlagafjöru þremur árum eftir fyrstu skóflustungu
S!ll! sendir frá sér nýtt lag og heldur tónleika í kvöld
Óska eftir framlengingu á flugi vegna stöðunnar í Landeyjahöfn
Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.