Páskafundur Aglow verður í kvöld kl. 19.30

Páskafundur Aglow verður miðvikudagskvöldið  5. apríl kl. 19.30 í Safnaðarheimili Landakirkju. Boðið verður upp á veitingar og fundurinn sjálfur byrjar kl. 20.00.  Á fundinum munum við skoða innihald páskanna.

Hvað þýðir það fyrir okkur að Jesús dó á krossi og reis upp á þriðja degi. Við munum ræða um merkingu upprisunnar og boðið verður upp á að koma með vitnisburð, athugasemdir, vangaveltur og spurningar. Páskar, upprisuhátíðin, er elst og mest allra kristinna hátíða. Upprisan er kjarni kristinnar trúar. Páskar er hátíð gleði og fagnaðar.

Kristur er upprisinn!  Kristur er sannarlega upprisinn!  Hann hefur afmáð dauðann og  leitt í ljós líf og ódauðleika……En það, að þessar konur, fyrstar allra – lifðu umbreytinguna frá ósigri til huggunar og gleði, að lærisveinarnir opnuðu læstar dyrnar sem þeir höfðu byrgt sig bak við, og sögðu öðrum fréttina, létu hana berast frá manni til manns, að hún hefur borist yfir höf og fjöll og allt til okkar nú með umbyltandi afli sínu, það er kraftaverkið. ,,Ég er með yður alla daga.“ Þegar við reynum það, þá verða páskar sannlega í dag í okkur. (Barbara Cratzius)

Við hlökkum til að hitta ykkur sem flestar á miðvikudagskvöldið og eru allar konur hjartanlega velkomnar.  Stjórn Aglow óskar ykkur öllum gleðilegrar páskahátíðar.

Síðasti Aglow fundur vetrarins verður 3. maí og ætlum við að fara í bænagöngu og fara yfir efni frá Taívan frá Alþjóðlegum bænadegi kvenna. Nánar auglýst síðar.

Gleðilega páska !

Nýjustu fréttir

Arnar kom íslenska landsliðinu á EM 2026
ÍBV og FH skildu jöfn á Hásteinsvelli
Vinnslustöðin snýr vörn í sókn á krefjandi ári
Bilun í Herjólfi veldur lengri siglingatíma
Spurt og svarað: Guðni Hjöll frá Miðflokknum
ÍBV hefur leik í Bestu deildinni – tekur á móti FH á Hásteinsvelli
Flugvél frá Icelandair flaug óvenju lágt yfir Eyjum
Lækkandi ölduhæð og Álfsnesið á leiðinni
Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.