Velkomin á notalegan páskafund í kvöld 1. apríl kl. 19:30.
Kvöldið verður í hlýlegu og páskalegu andrúmslofti þar sem boðið verður upp á:
✨ Söng
🙏 Bæn
💭 Hugleiðingu
🍰 Veitingar og fallega skreytt umhverfi í anda páskanna
Í Opinberunarbókinni 1.18 stendur : Kristur segir: Ég dó en nú lifi ég um aldir alda og ég hef lykla dauðans og heljar.
Komdu og njóttu samveru, kyrrðar og gleði á þessum sérstaka tíma árs.
Við áttum gott samfélag á marsfundinum og var Tryggvi Hjaltason með skírt og gott orð til okkar. Á næsta fundi mun Sigrún Inga Sigurgeirsdóttir tala til okkar. Sigrún Inga hefur tekið þátt í Aglow starfinu í mörg ár og verið trúföst í bænahóp sem hittist vikulega. Við erum full eftirvæntingar fyrir næsta fundi.
Allar konur hjartanlega velkomnar !
Gleðilega páska !
Hvað er sjóveiki?
Sjóveiki er misræmi milli skynfæra líkamans sem senda boð til heilans um hreyfingu – kyrrstöðu.
Þegar einstaklingur er úti á sjó þá nema skynjarar í vökvafylltum gangi í innra eyra hreyfingu og senda boð til heilans að einstaklingur sé á hreyfingu. Augun senda hins vegar boð til heilans um að viðkomandi sé kyrr. Heilinn á erfitt með að vinna úr þessum misvísandi og ósamræmdu upplýsingum og sendir skilaboð til magans um að tæma sig – þ.e. veldur uppköstum.
Einkenni sjóveiki eru þreyta, ógleði, svimi, svitakóf og uppköst.
Góð ráð til að hindra sjóveiki:
Lyf við sjóveiki þ.e. lyf sem slá á einkennin og fást án lyfseðils í apóteki.
Önnur ráð:
Hvar í skipinu er best að vera o.fl.
Þungun:
Þungaðar konur sem þjást af sjóveiki mega nota koffinátín í litlum skömmtum en best er að ráðfæra sig við lækni eða lyfjafræðing.
Þunguðum konum er ekki ráðlagt að nota engifer þar sem það er ekki staðfest hvort það geti haft skaðleg áhrif á fóstur.