Prófkjör hjá Framsóknarfólki í Suðurkjördæmi
Frambjóðendur Framsóknarflokksins í Suðurkjördæimi 2017

Tuttugasta kjördæmisþing Kjördæmissambands Framsóknarfélaganna í Suðurkjördæmi (KSFS) var haldið í fjarfundi fimmtudaginn 22. október. Skráðir fulltrúar í þinginu voru rúmlega eitthundrað og fór þingið vel fram við óvenjulegar aðstæður. Var þetta í fyrsta sinn sem þing KSFS er haldið í fjarfundi auk þess sem kosningar voru rafrænar. Var það mál fólks að þinghald hefði gengið vel undir styrkri stjórn Söndru Ránar Ásgrímsdóttur þingforseta.

Á þinginu var tillaga stjórnar KSFS um að lokað prófkjör verði haldið til að velja á lista Framsóknarflokksins í Suðurkjördæmi fyrir næstu alþingiskosningar samþykkt með 78% atkvæða. Kosið verður um sex efstu sæti listans í Suðurkjördæmi samkvæmt reglum flokksins þar um. Kjördagur verður laugardagurinn 10. apríl 2021 og rétt til atkvæðagreiðslu eiga flokksbundnir framsóknarmenn sem eiga lögheimili í kjördæminu 30 dögum fyrir prófkjörsdag.

Á þinginu var jafnframt samþykkt tillaga frá Jóni Gautasyni formanni Guðna, félags ungra Framsóknarmanna í Árnes- og Rangárvallasýslu, að leitað yrði leiða til að hægt verði að kjósa með rafrænum hætti í prófkjörinu.

Björn Harðarson var endurkjörinn fomaður KSFS á þinginu en auku hans skipa stjórn þau Magnea Herborg Björnsdóttir, Gunnlaugur Hreinsson, Gissur Jónsson, Jóhanna Ýr Jóhannsdóttir, Kristján Sigurður Guðnason og Guðrún Sigríður Briem.

Í kjörstjórn KSFS fyrir prófkjörið voru kjörin Magnea Herborg Björnsdóttir formaður, Karl Pálmason, Reynir Arnarson, Sigrún Þórarinsdóttir, Friðrik Björnsson, Gissur Jónsson og Hafdís Hrönn Hafsteinsdóttir.

Nýjustu fréttir

Saman erum við sterkari
Frambjóðendur á opnum kynningarfundi í Ásgarði
ÍBV sigraði botnlið ÍR í Eyjum
Loppumarkaður í Safnahúsinu um helgina
Styttist í að sundlaugin opni
Segjum það sem við getum staðið við
Guðrún Erlings lætur fimmtán ára draum rætast
Framtíðin er í okkar höndum
Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.