Prófkjör Sjálfstæðisflokksins er í dag
Þau bjóða sig fram í prófkjöri Sjálfstæðisflokksins í dag.
  • Talning og prófkjörsvaka eftir lokun kjörfundar í kvöld – Mikill þátttaka var í utankjörfundar atkvæðagreiðslu

Prófkjör Sjálfstæðisflokksins fer fram í dag og stendur kjörfundur, í Ásgarði, frá kl. 14  til 22. Utankjörfundar atkvæðagreiðslu lauk í gærkvöldi og nýtti fjöldi kjósenda sér utankjörfundar atkvæðagreiðsluna en samtals kusu 494 utankjörfundar.

Talning mun hefjast strax við lokun kjörfundar í kvöld og er vonast til að úrslit liggi fyrir upp úr kl. 01. Tölur úr talningunni munu verða birtar amk. tvisvar áður en lokatölur koma.

Efnt verður til prófkjörsvöku í Akógeshúsinu frá kl. 21 í kvöld en þar munu frambjóðendur og þeirra stuðningsmenn fylgjast með fréttum af talningu  og er húsið opið fyrir þá sem áhuga hafa á að fylgjast með.

Tölur úr talningu verða lesnar í beinu streymi á Facebook síðu Sjálfstæðisflokksins í Vestmannaeyjum og þar munu einnig birtast fréttir af framgangi talningar og aðrar upplýsingar. Lokatölur munu þó einungis verða lesnar upp í Akóges, en að sjálfsögðu munu úrslitin birtast á Facebook síðunni. Einnig munu allar tölur og upplýsingar verða birtar á heimasíðu Sjálfstæðisflokksins xd.is .

Með prófkjöri gefur Sjálfstæðisflokkurinn, einn flokka í Eyjum, kjósendum kost á að stilla upp framboðslista fyrir bæjarstjórnarkosniingarnar í vor og vonumst við eftir að kjósendur nýti sér þetta tækifæri ti lað hafa áhrif á hvernig framboðslistinn mun verða. Við vonumst því eftir góðri þátttöku í prófkjörinu í dag.

Kjörstjórn

 

Nýjustu fréttir

Prófkjör Sjálfstæðisflokksins er í dag
Vestmannaeyjar í gegnum linsu liðins tíma
Gleðilegan kjördag
Spennandi prófkjör Sjálfstæðismanna í Eyjum
Pílan: Deildarkeppni lokið – Útsláttur hefst
Fasteignaumfjöllunin – útsýni á heimsmælikvarða
Fyrir þig en ekki sjálfa sig
Laskað lið ÍBV tapaði gegn Val
Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.