Ráðherrann ræður
Páll Magnússon

Bæjarstjórn Vestmannaeyja samþykkti einróma fyrir helgi að skora á fjármálaráðherra að draga tilbaka kröfur um að Vestmannaeyjabær láti af hendi til ríkisins stóran hluta af Heimaey og allar úteyjarnar.

Í bókun bæjarstjórnar segir: ‘’Eignarhald Vestmannaeyjabæjar gagnvart heimalandinu og úteyjum í heild sinni er ótvírætt og stutt óyggjandi gögnum. Sérstök lög voru sett árið 1960 um sölu ríkisins á öllu landi í Vestmannaeyjum til Vestmannaeyjakaupstaðar. Á grundvelli laganna seldi ríkið Vestmannaeyjar í heild sinni til Vestmannaeyjabæjar og var gefið út afsal þar að lútandi og því þinglýst. Það er fráleitt að kröfugerð ríkisins nú byggist á því að véfengja heimildir sama ríkisvalds til að selja og afsala Vestmannaeyjabæ öllu landi í Vestmannaeyjum’’.

Í þau 63 ár sem liðin eru frá þessum kaupsamningi hafa engar deilur risið um efni hans, aldrei nokkur maður, stofnun eða félag, gert tilkall til þess lands eða eyja sem samningurinn tekur til – og enginn véfengt að nákvæmlega svona skuli þessum málum hagað. Engar landamerkjadeilur. Ekkert. Þangað til núna. Fjármálaráðherra – ríkið – tekur sig til og rýfur friðinn, sáttina og eigin samning. Og þegar spurt er um tilganginn – markmiðið með þessari herför – er svarið: af því bara. Vísað er í Þjóðlendulögin sem voru samin og sett í allt öðrum tilgangi en fyrir ríkið til að ryðjast inn í þéttbýli og sölsa undir sig land sem það sjálft hefur þegar selt og afsalað fyrir löngu. Fáránleikinn í Eyjum birtist m.a. í því að ríkið gerir kröfur í land sem þegar er búið að ráðstafa með réttum hætti undir atvinnustarfsemi þar sem fjárfestingar og framkvæmdir standa nú yfir fyrir tugi milljarða.

Fáránleikinn er sumstaðar jafnvel enn meiri en í Eyjum. Á Höfn í Hornafirði gerir fjármálaráðherra kröfu í Krossey – líklega bara vegna þess að það er ‘’ey’’ í nafninu. Krossey hefur hins vegar ekki verið eyja síðan um 1970 þegar hún varð hluti af landfyllingu þar sem m.a. stendur nú fiskverkunarhús Skinneyjar/Þinganess og ýmis önnur mannvirki. Þjóðlenda? Óbyggðanefnd?

Í síðustu viku hafnaði Óbyggðanefnd ósk fjármálaráðherra um breytta málsmeðferð varðandi þá kröfulýsingu sem hér um ræðir. Enda svo sem ekki um mikið annað að ræða en breytta röð á bréfum. Nefndin tekur líka af öll tvímæli um stöðu og ábyrgð fjármálaráðherra í þessu máli og segir í bréfinu:

‘’Óbyggðanefnd bendir á að skv. 1. mgr. 10.gr. þjóðlendulaga hefur fjármála- og efnahagsráðherra forræði í kröfugerð ríkisins í þjóðlendumálum og skv. 1. mgr. 11. gr. þjóðlendulaga fer fjármála- og efnahagsráðherra með fyrirsvar fyrir hönd ríkisins og stofnana á vegum þess við úrlausn um hvort land teljist til eignarlands eða þjóðlendu. Telji fjármála- og efnahagsráðherra að tilefni sé til að endurskoða kröfur ríkisins um þjóðlendur á svæði 12, eftir atvikum að framkomnum gagnkröfum eða undangenginni frekari gagnaöflun, er á forræði ráðherra að taka þær til endurskoðunar á hvaða stigi máls sem er’’.

Þá höfum við það. Fjármálaráðherra hefur sem sagt fullt vald á þessu máli og kjósi hún að láta þennan fáránleika ganga áfram – með öllum þeim ama og tilkostnaði sem því fylgir – er það hennar ákvörðun og hún á ekkert skjól í embættismönnum eða lögfræðiskrifstofum úti í bæ hvað það varðar.

Valdið er ráðherrans og hún á að nota það til að afturkalla þennan órökrétta og tilgangslausa yfirgang af hálfu ríkisins í garð einstaklinga og sveitarfélaga.

Páll Magnússon

Nýjustu fréttir

Elmar áfram hjá Nordhorn-Lingen
Róbert hjá ÍBV næstu tvö árin
Framkvæmdir langt komnar í Íþróttamiðstöðinni
Skákþing Vestmannaeyja: Úrslitin ráðast í síðustu umferðunum
Yfir 90% íbúa ánægðir
Bríet kemur fram á Hljómey
Sæunn Magnúsdóttir gengur til liðs við Miðflokkinn
Framkvæmdir hafnar við Áshamar 77  
Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.