Ráðningarferlið virðist fyrst og fremst hafa verið í höndum starfsmanns Vestmannaeyjabæjar

Verkferlar við ráðningu hafnarstjóra voru til umræðu á fundi framkvæmda og hafnarráðs í vikunni sem leið en rætt var um dóm héraðsdóms suðurlands vegna ráðningar hafnarstjóra.

Fulltrúar D lista lögðu fram bókun um málið. “Fulltrúar vilja í kjölfar dóms nr. E-520/2021 frá 25. október sl. benda á nauðsyn þess að ráðið þekki valdsvið sitt en þrátt fyrir að framkvæmda- og hafnarráð fari með það vald að ráða hafnarsstjóra kom ráðið að afar takmörkuðu leyti að ráðningarferlinu. Ráðningarferlið virðist fyrst og fremst hafa verið í höndum starfsmanns Vestmannaeyjabæjar. Hæfniskröfur þær sem gerðar voru í auglýsingunni voru ekki þær sömu og komu fram í minnisblaði því sem ráðið hafði samþykkt, auglýsingin var ekki borin undir ráðið fyrir birtingu hennar auk þess sem starfsmaðurinn leitaði til ráðningaskrifstofu án aðkomu ráðsins. Ráðið ber engu að síður ábyrgð á ráðningunni og ber að framfylgja rannsóknarskyldu skv. 10. gr. stjórnsýslulaga. Málsmeðferð Vestmannaeyjahafnar var ámælisverð og ekki lögum samkvæmt að mati dómsins. Fulltrúar D lista hafa áður gagnrýnt vinnubrögðin við ráðninguna í óþökk meirihluta. Tryggja þarf að ráðið þekki skyldur sínar og að farið verði að settum lögum og reglum við ráðningar í framtíðinni. Þá er þess krafist að við ráðningar starfsmanna hjá Vestmannaeyjabæ og undirstofnunum hans sé samþykktu verklagi fylgt og að ávallt verði leitast við að ráða hæfasta umsækjandann.

Fulltrúar H og E lista svöruðu með eftirfarandi bókun. Fulltrúar E og H lista óska eftir að fá að kynna sér dóminn frekar og áskila sér rétt til að taka málið upp aftur ef þörf krefur.

Nýjustu fréttir

Gyllta flóran frá Féló vann Stíl 2026
Útboð Vestmannaeyjabæjar um heilsurækt aftur til kærunefndar
Myndband frá höfninni: Steðji VE landar
Að loknu prófkjöri
Bærinn eignfærir lögfræðikostnað  
ÍBV tapaði gegn Haukum
Bæjarráð hafnar bótakröfu vegna gatnagerðar við Alþýðuhús
Laxey rís í Vestmannaeyjum
Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.