Á þriðjudaginn var tekin í notkun svonefnd rástímaskráning hjá Golfklúbbi Vestmannaeyja. Allmargir golfklúbbar hafa tekið upp rástímaskráningu, aðallega klúbbarnir á höfuðborgarsvæðinu þar sem ásókn er mikil. GV er tuttugasti klúbburinn sem tekur upp slíka skráningu og Elsa Valgeirsdóttir, framkvæmdastjóri GV, segir það hafa verið nauðsynlegt í kjölfar þess að Herjólfur hóf siglingar í Landeyjahöfn.