Reyn­ir við ólymp­íulág­markið í fyrstu til­raun
Vestmannaeyjahlaup
Hlynur Andrésson.

Hlyn­ur Andrés­son lang­hlaup­ari frá Vest­manna­eyj­um mun hlaupa sitt fyrsta heila maraþon á æv­inni um næstu helgi og ræðst ekki á garðinn þar sem hann er lægst­ur því þar ætl­ar hann jafn­framt að reyna við lág­markið til að vinna sér inn keppn­is­rétt á Ólymp­íu­leik­un­um í Tókýó í sum­ar.

Maraþonið verður hlaupið í Bern í Sviss á sunnu­dag­inn en þótt Hlyn­ur hafi aldrei reynt við heilt maraþon hef­ur hann á und­an­förn­um árum hreinsað upp Íslands­met­in á öll­um vega­lengd­um frá 3.000 metr­um og upp í 21 kíló­metra.

Í viðtali við RÚV sagðist Hlyn­ur vongóður um að geta hlaupið und­ir ólymp­íulág­mark­inu. „Það er frek­ar erfitt fyr­ir mig að segja til um það þar sem ég hef aldrei hlaupið maraþon áður. En miðað við tím­ann sem ég hljóp hálft maraþon á í októ­ber og formið sem ég er í núna held ég að ég geti hlaupið und­ir þessu ólymp­íulág­marki. Það er samt erfitt fyr­ir mig að vera með of mikl­ar yf­ir­lýs­ing­ar. Ég ætla fyrst og fremst að gera bara mitt besta í þessu hlaupi.“

mbl.is greindi frá.

Nýjustu fréttir

Prófkjör Sjálfstæðisflokksins er í dag
Vestmannaeyjar í gegnum linsu liðins tíma
Gleðilegan kjördag
Spennandi prófkjör Sjálfstæðismanna í Eyjum
Pílan: Deildarkeppni lokið – Útsláttur hefst
Fasteignaumfjöllunin – útsýni á heimsmælikvarða
Fyrir þig en ekki sjálfa sig
Laskað lið ÍBV tapaði gegn Val
Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.