Ri­bsafari ábyrgt vegna lík­ams­tjóns
Trygg­inga­miðstöðinni hef­ur verið gert að greiða manni bæt­ur úr ábyrgðatrygg­ingu Rifsafari ehf., en maður­inn varð fyr­ir lík­ams­tjóni um borð í ribb­át fyr­ir­tæk­is­ins í júlí 2013. Héraðsdóm­ur Reykja­vík­ur komst að þeirri niður­stöðu að Ri­bsafari hefði borið að tryggja í hví­vetna ör­yggi farþega sinna en það hefði ekki verið gert.
Slysið átti sér stað um borð í bátn­um Stóra erni, við sam­nefnda eyju norðan Heima­eyj­ar. �?að bar þannig að að bát­ur­inn skall niður í öldu­gangi, með þeim af­leiðing­um að maður­inn keyrðist niður í sæti sitt og hlaut ba­ká­verka. Var var­an­leg lækn­is­fræðileg ör­orka manns­ins met­in 7%.
Deilt var um það m.a. hvort maður­inn hefði farið að fyr­ir­mæl­um og staðið yfir sæt­inu með bog­in hné, líkt og farþegum hafði verið leiðbeint, en dóm­ur­inn komst að þeirri niður­stöðu að um þetta hefði ekki verið gerð ský­laus krafa eða farþegar varaðir við því að það gæti verið hættu­legt að sitja í sæt­un­um.
Fram kom að um­rædd­an dag hefðu starfs­menn Ri­bsafari þegar farið tvær ferðir og þeim því verið vel kunn­ugt um að sjó­lag var ekki með besta móti, auk þess sem þeir þekktu vel þá hættu að farþegar gætu fengið högg á hryggsúlu og meiðst á baki þegar bát­ur­inn væri keyrður í velt­ingi.
Sam­kvæmt skýrslu rann­sókn­ar­nefnd­ar sam­göngu­mála var farþegum bent á að �??það gæti orðið smá hopp og skopp�?? í ferðinni og þá vissi áhöfn­in að það væri �??svo­lítið rót úti fyr­ir�??. Fram kem­ur í dómsorðinu að starfs­mönn­um Ri­bsafari hefði verið ljóst að hætta á bak­meiðslum var mest fyr­ir þá sem sátu í fremstu sæt­um báts­ins þar sem maður­inn sat.
�?etta er ekki í eina skiptið sem farþegar Ri­bsafari hafa hlotið áverka en tvær kon­ur hrygg­brotnuðu í maí sl. eft­ir báts­ferð á veg­um fyr­ir­tæk­is­ins.

Nýjustu fréttir

Ófullnægjandi dýpi í Landeyjahöfn – uppfært
Ekki einhugur um milljóna framlag til ÍBV
Loðnuvertíðin hafin í Eyjum
Heiðurshjónin Hjalti og Vera Björk Eyjafólk ársins 2025
Elmar áfram hjá Nordhorn-Lingen
Róbert hjá ÍBV næstu tvö árin
Framkvæmdir langt komnar í Íþróttamiðstöðinni
Skákþing Vestmannaeyja: Úrslitin ráðast í síðustu umferðunum
Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.