Um helgina fer fram risa handboltamót í Vestmannaeyjum. Þá verður keppt í Íslandsmótinu hjá 5. flokki, bæði karla og kvenna. Árni Stefánsson, hjá ÍBV-íþróttafélagi, segir að skipulagning mótsins hafi gengið vel. „Í það heila eru þetta um 600 manns sem við erum að taka á móti, keppendur, þjálfarar og fararstjórar. Alls verða leiknir 118 leikir í sex deildum í karlaflokki og fimm deildum í kvennaflokki. Það verður keppt á fjórum völlum því við notum líka salinn í Týsheimilinu. Mótið byrjar klukkan þrjú á föstudag og lýkur kl. tvö á laugardag,“ sagði Árni en ÍBV teflir fram tveimur karlaliðum og einu kvennaliði.