Ég sækist eftir 2. sæti á framboðslista Sjálfstæðisflokksins í prófkjörinu þann 13. mars nk.
Ég er þakklát og auðmjúk gagnvart því að hafa sl. fjögur ár fengið tækifæri til þess að taka ábyrgð og vera í forystu fyrir samfélagið okkar. Þessi ár hafa verið lærdómsrík og gefandi. Það sem hefur drifið mig áfram er væntumþykja mín gagnvart Vestmannaeyjum og fólkinu sem hér býr. Ég hef reynt að vera traustur samstarfsaðili, hlusta á ólík sjónarmið og taka ákvarðanir með hagsmuni Vestmannaeyja að leiðarljósi.
Í Vestmannaeyjum er gott að búa, en við getum gert betur. Ef eitthvað er óskilvirkt, þá eigum við að laga það. Ef eitthvað virkar, þá eigum við ekki að flækja það og ef við þurfum að gera breytingar eða betur þá skulum við gera það.
Ég hef einlægan vilja til að leggja mitt af mörkum og taka ábyrgð á því samfélagi sem ég er hluti af og sjá það þróast, vaxa og dafna okkur öllum til heilla.
Margrét Rós Ingólfsdóttir
bæjarfulltrúi Sjálfstæðisflokksins