Samband um ljósleiðarastreng rofið

Samkvæmt heimildum Eyjafrétta rofnaði samband um ljósleiðarastreng Ljósleiðarans til Vestmannaeyja á föstudaginn. Líkleg ástæða er að Huginn VE missti ankeri og keðju rétt innan við Klettsnefið þegar skipið kom til hafnar í Vestmannaeyjum síðdegis á föstudaginn. Þarna liggja vatnsleiðsla, rafstrengir og ljósleiðarar. Ekkert bendir til þess að vatnsleiðsla eða aðrir strengir hafi rofnað.

Það er þó ekki útilokað að t.d. vatnsleiðslan hafa orðið fyrir hnjaski. Ekki tókst að kafa niður að henni í gær en það verður reynt í dag. Þá kemur í ljós hver staðan er og gerðar ráðstafanir til að ná upp ankeri og keðju.

Þegar þetta gerðist var Lóðsinn kallaður út til aðstoðar. „Huginn lenti í vandræðum með annað ankerið í innsiglingunni. Til að tryggja öryggi var óskað eftir að Lóðsinn væri á staðnum á meðan ankerið var skorið frá skipinu. Við munum með aðstoð kafara skoða málið betur á morgun og reyna að ná ankerinu upp. Það var enginn hætta á ferðum og skipið var alltaf á eigin vélarafli,“ sagði Sindri Viðarsson, sviðstjóri uppsjávarsviðs Vinnslustöðvarinnar í samtali við Eyjar.net.  Að sögn Sindra var Huginn að koma af kolmunnamiðum austur af Færeyjum. Aflinn er um 1.800 tonn.

 

Nýjustu fréttir

Góður mánudagur sem varð enn betri!
Fimm skip til loðnuleitar
Löndun Breka VE í Grundarfirði – flókið verkefni og fumlaus vinnubrögð
Gong slökun, endurstilling í hraða nútímans
Bæjarráð gagnrýnir samgönguáætlun
Elliði með fimm mörk í stórsigri Íslands
Herjólfur í Þorlákshöfn í dag og á morgun
Orkumálin til skoðunar hjá ráðherra
Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.