Samruni VSV, Óss og Leo Seafood samþykktur

Samkeppniseftirlitið hefur samþykkt samruna Vinnslustöðvarinnar hf., Útgerðarfélagsins  Óss hf. og Lea Seafood ehf. Samruninn var tilkynntur samkeppnisyfirvöldum 28. febrúar 2023 og niðurstaðan liggur nú fyrir.

Fram kemur að fyrirtækin fari með tæplega 7% af aflahlutdeild í þorskígildiskílóum, sem er undir 12% hámarki samkvæmt lögum nr. 116/2006 um stjórn fiskveiða.

Sagt var frá kaupum Vinnslustöðvarinnar á Ós og Leo Seafood í Eyjafréttum þann 1. nóvember á síðasta ári:

Sameining VSV, Óss og Leo Seafood mikil tíðindi:

Störf og kvóti haldast áfram í Vestmannaeyjum

Fyrir rétt 30 árum, um áramótin 1991 og 1992 sameiðuðust Hraðfrystistöð Vestmannaeyja og Ísfélagið og tengd félög og Fiskiðjan og Vinnslustöðin og tengd félög undir nafni Ísfélgs Vestmannaeyja hf. og Vinnslustöðvarinnar hf. Um leið var lagður grunnur að áframhaldandi sterkri stöðu Vestmannaeyja í sjávarútvegi eins og við þekkjum hana í dag.

Þó ekki sé saman að jafna þá hafa ekki orðið meiri tíðindi í útgerð og vinnslu í Vestmannaeyjum en á mánudaginn þegar stjórn Vinnslustöðvarinnar hf. og hluthafar í Ós ehf. og Leo Seafood ehf. undirrituðu viljayfirlýsingu um kaup Vinnslustöðvarinnar á öllu hlutafé í félögunum tveimur.

Viljayfirlýsingin er með fyrirvörum en gangi kaupin eftir er gert ráð fyrir að samningar verði undirritaðir á næsta ári. Ós er ein öflugasta útgerð í einkaeigu á landinu og gerir út Þórunni Sveinsdóttur VE-40. Leo Seafood ehf. er fiskvinnslufyrirtæki í fremstu röð og eigendur félaganna eru Sigurjón Óskarsson útgerðarmaður og fjölskylda hans.

Samkvæmt heimildum Eyjafrétta var aðdragandinn stuttur, eigendur Óss og Leo Seafood höfðu viðrað hugmyndina við forráðamenn VSV einum mánuði áður  og ítrekað fyrir um viku síðan. Eftir það gekk þetta fljótt fyrir sig.

„Þetta tók ekki nema þrjá til fjóra daga eftir að við fórum af stað fyrir alvöru,“ sagði Sigurgeir Brynjar Kristgeirsson, framkvæmdastjóri Vinnslustöðvarinnar við Eyjafréttir á þriðjudaginn. „Þetta kom óvænt upp í hendurnar á okkur og er mjög spennandi. Ós og Leo Seafood eru vel rekin fyrirtæki með öflugu starfsfólki.  Við munum byggja á þeim grunni.“

 

 

Nýjustu fréttir

Róbert hjá ÍBV næstu tvö árin
Framkvæmdir langt komnar í Íþróttamiðstöðinni
Skákþing Vestmannaeyja: Úrslitin ráðast í síðustu umferðunum
Yfir 90% íbúa ánægðir
Bríet kemur fram á Hljómey
Sæunn Magnúsdóttir gengur til liðs við Miðflokkinn
Framkvæmdir hafnar við Áshamar 77  
Dýptarmælingar fyrirhugaðar í Landeyjahöfn
Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.