Samverustund fyrir aðstandendur fólks með heilabilun verða annan hvern miðvikudag fram til vors. Alls 5 skipti. Fyrsta samvera er 22.mars kl 17:30 í safnaðarheimili Landakirkju og er öllum opin sem málefnið snertir. Umsjónaraðilar eru sr. Viðar Stefánsson og Guðný Bjarnadóttir djákni.
Aðstandendur eru fjölbreyttur hópur með ólíkar þarfir en á það sameiginlegt að eiga ástvin heima, í dagþjálfun eða á hjúkrunarheimili. Markmiðið með samverunni er að hittast, spjalla og deila reynslunni. Stuðningur annarra í svipuðum aðstæðum getur bætt líðan og dregið úr streitu. Allir aðstandendur fólks með heilabilun eru hvattir til að koma og spjalla. Ekki þarf að skrá sig og samveran er ókeypis.