Sannfærandi sigur í Grindavík

ÍBV sótti Grindavík heim í leik í 16. umferð Pepsi-deildar kvenna í dag.

Eyjastúlkur byrjuðu af miklum krafti og eftir aðeins 4 mínútu leik kom Ingibjörg Lúcía Ragnarsdóttir ÍBV yfir. Þrátt fyrir að ÍBV hefði öll völd á vellinum náðu Grindvíkingar að jafna úr víti á 14. mínútu.

Rut Kristjánsdóttir kom ÍBV hinsvegar aftur yfir á 34. mínútu með skalla eftir hornspyrnu. Þannig var staðan í hálfleik. 1-2 ÍBV í vil.

Yfirburðir Eyjastúlkna héldu áfram í síðari hálfleik. Þrátt fyrir að skapa sér mörg færi tókst þeim hins vegar ekki að skora fleiri mörk. Endaði leikurinn því með tveimur mörkum ÍBV gegn einu frá Grindavík.

Með sigr­in­um trygg­ir ÍBV stöðu sína í 5. sæt­inu og er komið með 22 stig. Grinda­vík er áfram í 9. sæti með 10 stig og í bullandi fallbaráttu.

Nýjustu fréttir

Prófkjör Sjálfstæðisflokksins er í dag
Vestmannaeyjar í gegnum linsu liðins tíma
Gleðilegan kjördag
Spennandi prófkjör Sjálfstæðismanna í Eyjum
Pílan: Deildarkeppni lokið – Útsláttur hefst
Fasteignaumfjöllunin – útsýni á heimsmælikvarða
Fyrir þig en ekki sjálfa sig
Laskað lið ÍBV tapaði gegn Val
Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.