Strákarnir í 3. flokk Selfoss í knattspyrnu eru komnir í forkeppni úrslita um Íslandsmeistaratitilinn. Strákarnir unnu sinn riðil, og þar urðu nágranar okkar úr ÍBV í 2. Sæti og komast því líka áfram. Selfyssingar leika við Fjölni á Selfossvelli í dag laugardaginn 6. Sept kl 15.15. Ef strákarnir vinna þennan leik fá þeir auka leik á sunnudag og fara svo í sjálf úrslitin um Íslandsmeistaratitilinn. Allir eru velkomnir á Selfossvöll á laugardag til að sjá framtíðar knattspyrnustráka Selfoss og Íslands spila.