Siglir bikarinn heim í kvöld?

ÍBV og Valur mætast í úrslitum Powerade-bikarsins í dag klukkan 16:00 í Laugardalshöllinni. Í undanúrslitum unnu Eyjamenn Hauka með sex marka mun, 33-27 og Valur vann öruggan 32-26 sigur á Stjörnunni.

Liðin hafa á liðnum árum háð margar spennandi úrslitarimmur en þó aldrei mæst í úrslitaleik í bikarkeppninni. Það verður að teljast merkilegt í ljósi þess að á síðustu 10 árum hefur bikarinn sjö sinnum endað í vörslu annars þessara liða.

ÍBV hefur fjórgang komið heim með bikarinn til Eyja það var 1991, 2015, 2018 og 2020. Stuðningsmenn liðsins eru alveg tilbúnir í heimsiglingu í kvöld með tilheyrandi fagnaðarlátum.

Valsliðið er ógnarsterkt og hefur átt gríðar góðu gegni að fagna á síðustu árum. Lið ÍBV hefur sýnt allar sínar bestu hliðar í Laugardalshöll og aldrei tapað bikarleik á þjóðarleikvangnum. Um 140 voru skráðir í hópferð á leikinn í gær þegar lokaði fyrir skráningu. Það er óhætt að hvetja Eyjamenn nær og fjær til þess að fjölmenna á leikinn í dag sem allt bendir til að verði hin besta skemmtun. Fyrir aðra þá verður leikurinn í beinni á RÚV.

Nýjustu fréttir

Laskað lið ÍBV tapaði gegn Val
Athugasemd
Dísa leiðir Eyjalistann
Kvenfélagið Líkn færði HSU veglega gjöf
Loðnan tengir saman Vestmannaeyjar og Japan
Listir og menning í Framhaldsskóla Vestmannaeyja
Lestur ársreiknings bæjarins gefur allt aðra mynd
Ísólfur Gylfi – 42 ár frá Helliseyjarslysinu
Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.