Sigurður Grétar framlengir

Eyjamaðurinn Sigurður Grétar Benónýsson hefur framlengt samning sinn við knattspyrnudeild ÍBV út knattspyrnutímabilið 2024. Þetta kemur fram í tilkynningu frá félaginu.

Sigurður er 26 ára gamall sóknarmaður sem hefur verið leikmaður ÍBV alla ævi hérlendis ef fráskilið er tímabilið 2020 þar sem Siggi lék með Vestra.

Hann hefur skorað 8 mörk í 45 KSÍ leikjum með ÍBV og tók þátt í tveimur leikjum á síðasta ári, þar sem hann var að glíma við meiðsli. Sigurður hefur eins og margir knattspyrnuleikmenn frá Eyjum einnig leikið með KFS þar sem hann var reyndist liðinu happafengur í 3. deildinni.

Nýjustu fréttir

Íslandsbanki varar við svikasímtölum
Tölum saman í FÍV á morgun
Útflutningur eldisafurða kominn í tæpan 51 milljarð
Sigurbergur ráðinn tómstunda-, íþrótta- og forvarnarfulltrúi
Í höfn og á hafi – myndasyrpa
Málþing, súpa og spjall
Eyjamenn sækja ÍR heim í bikarnum í kvöld
Hátt í 50 manns við síldarvinnslu hjá VSV
Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.