Sigurður Ingi Jóhansson: Vinna - vöxtur - velferð
Vinna
Atvinna er undirstaða vaxtar og velferðar og gegna lítil og meðalstór fyrirtæki þar lykilhlutverki. Hlutverk ríkisins er fyrst og fremst að skapa hagstæða umgjörð um atvinnulífið, meðal annars með einföldun skattkerfis og regluverks atvinnurekstrar. Koma þarf í veg fyrir að fyrirtæki búi við íþyngjandi kröfur sem ekki þjóna tilgangi sínum.
Mikilvægt er að gefa sem flestum tækifæri til að nýta starfskrafta sína með viðeigandi hætti. Framsókn vill afnema frítekjumarkið af atvinnutekjum. Margir þeir sem eru komnir á efri ár og eiga rétt á lífeyri frá almannatryggingum vilja halda áfram að vinna. Fólk á rétt á að hafa val. �?eir sem vilja og geta unnið, eiga að fá tækifæri til þess. Fátt er eins ömurlegt að langa til að halda áfram á atvinnumarkaðnum en upplifa neikvæða umbun í formi skerðingar á lífeyri. Atvinnuþátttaka aldraða leiðir til betri heilsu og heilbrigðara samfélags.
Vöxtur
Framsókn vill fjarlægja húsnæðisliðinn út úr vísitölu neysluverðs og banna verðtryggingu á
á neytenda- og íbúðalánum. Banna þarf ný verðtryggð lán svo heimilum bjóðist hagstæðir óverðtryggðir vextir og skapa þannig hvata og stuðning við heimili til að breyta verðtryggðum lánum í óverðtryggð. Verð á húsnæði hefur að jafnaði hækkað meira en verð á öðrum vörum og þjónustu sem skekkir vísitölu neysluverðs. Afleiðingin er að verðtryggðar skuldir heimilanna hafa hækkað um tugi milljarða undan-
farin ár.
Framsókn vill stuðla að því að raunvextir lækki. Aðgerðir varðandi verðtryggingu og að húsnæðisliðurinn sé tekinn út úr vísitölunni munu stuðla að vaxtalækkun. Framsókn vill samstarf stjórnvalda og aðila vinnumarkaðarins um hvernig hægt sé að sammælast um lækkun vaxta t.a.m. við kjarasamningsgerð.
Velferð
Framsókn vill fjárfesta í heilbrigðis-, samgöngu- og menntamálum. Setja þarf 20 milljarða í heilbrigðis-, samgöngu- og menntamál til að bregðast við brýnni þörf. Framsókn telur mikilvægt að nota ríflegan afgang af ríkisrekstri til að fjárfesta í betra heilbrigðiskerfi, betri lífsgæðum og betri samgöngum ásamt því að lækka skuldir ríkissjóðs.
Sigurður Ingi Jóhannsson,
formaður Framsóknarflokksins,
1. sæti í Suðurkjördæmi

Nýjustu fréttir

Gul viðvörun: Suðaustan hríð
Drífum í þessu svo við þurfum ekki að borga!
Stór viðbygging við Íþróttamiðstöðina í útboð
Páskafundur í safnaðarheimili Landakirkju
ÍBV semur við leikmann frá Portúgal
Tengdadæturnar  Sigurlaug, Emma og Inga létu til sín taka
Frábær skráning á sundnámskeið á vegum Vestmannaeyjabæjar
Framleging á flugi samþykkt fram í miðjan apríl
Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.