Sigurður Ingi - Maður orða sinna
Á seinustu dögum hafa fjölmiðlar réttilega hælt Sigurði Inga Jóhannssyni og hossað honum fyrir viðbrögð hans við niðurstöðu umboðsmanns Alþingis hvað varðar hið svokallaða Fiskistofumál. Umboðsmaður Alþingis taldi sem sagt að rangt hafi verið að málum staðið og vinnubrögð ekki í samræmi við vandaða stjórnsýsluhætti. Ráðherrann gekkst auðmjúkur við því og viðurkenndi mistök. Í viðtali við R�?V sagði hann réttilega að enginn væri yfir það hafinn að læra af verkum sínum og hann gengist við áliti umboðsmanns Alþingis.
Viðbrögðin voru ráðherranum til sóma og til eftirbreytni.
Nú má búast við því að þessi sami ráðherra nálgist eins…
…önnur álit umboðsmanns Alþingis. Vart fer ráðherrann að velja hvaða álit hann virðir og lærir af og hvaða álit hann hundsar og telur að ekki þurfi að læra af né fara eftir.
Nú hljóta bæði fjölmiðlar og aðrir að bíða þess í ofvæni að Sigurður Ingi Jóhannsson stígi fram og gangist við áliti umboðsmanns Alþingis frá 30. júní sl. í máli þar sem hann komst að hliðstæðri niðurstöðu. Sem sagt að þáverandi sjávarútvegsráðherra hafi ekki staðið rétt að úthlutun á makrílkvóta.
Niðurstaðan var ótvíræð. Svo vitnað sé orðrétt í niðurstöðu umboðsmanns Alþingis :
�??Af framangreindu leiðir að sú ákvörðun stjórnvalda að hlutdeildarsetja ekki makrílstofninn frá þeim tíma [þ.e. frá 2011] var ekki í samræmi við lög.�??
Samfélagið í Vestmannaeyjum og víðar hafa orðið fyrir miklum skaða hvað þessa ólögmætu úthlutun varðar. Áætlað hefur verið að í Vestmannaeyjum hafi tjónið legið nærri 5 til 6 milljörðum króna frá árinu 2011 til dagsins í dag vegna þessa. Tjón fyrirtækjanna og ekki síst starfsmanna þeirra er verulegt. Áætlað er að bara árið 2011 hefðu tapast 1.250 milljónir út úr samfélaginu hér í Eyjum. �?ar af voru tapaðar launatekjur sjómanna 133 milljónir og tapaðar tekjur landverkafólks 71 miljón- bara það árið. Síðan þá hefur skaðinn undið upp á sig og vaxið.
Víðtækasti skaðinn vegna þess alls er þó sennilega sú mikla óvissa sem skapast í sjávarútvegi þegar stöðugt er verið að hræra í viðskiptaumhverfinu og það jafnvel með ólögmætum hætti.
Sigurður Ingi hefur réttilega sagt að hann virði niðurstöður umboðsmanns Alþingis, vilji læra af þeim og haga embættisgjörðum í samræmi við þær. Álit umboðsmanns á makrílúthlutun liggur fyrir. �?að er til að mynda að finna hér (álit umboðsmanns á makrílúthlutun).
Sigurð Inga hef ég þekkt í mörg ár og veit að hann er maður orða sinna.

Nýjustu fréttir

Drífum í þessu svo við þurfum ekki að borga!
Stór viðbygging við Íþróttamiðstöðina í útboð
Páskafundur í safnaðarheimili Landakirkju
ÍBV semur við leikmann frá Portúgal
Tengdadæturnar  Sigurlaug, Emma og Inga létu til sín taka
Frábær skráning á sundnámskeið á vegum Vestmannaeyjabæjar
Framleging á flugi samþykkt fram í miðjan apríl
Aleksandar Linta nýr þjálfari Eyjamanna 

Góð ráð fyrir siglingu

Sjóveiki

Hvað er sjóveiki?

Sjóveiki er misræmi milli skynfæra líkamans sem senda boð til heilans um hreyfingu – kyrrstöðu.

Þegar einstaklingur er úti á sjó þá nema skynjarar í vökvafylltum gangi í innra eyra hreyfingu og senda boð til heilans að einstaklingur sé á hreyfingu. Augun senda hins vegar boð til heilans um að viðkomandi sé kyrr. Heilinn á erfitt með að vinna úr þessum misvísandi og ósamræmdu upplýsingum og sendir skilaboð til magans um að tæma sig – þ.e. veldur uppköstum.

Einkenni sjóveiki eru þreyta, ógleði, svimi, svitakóf og uppköst.

Góð ráð til að hindra sjóveiki:

  • Góð hvíld daginn fyrir brottför. Að fara seint að sofa og snemma um borð í bát fer ekki vel saman ef fólk er hætt við sjóveiki.
  • Forðist áfenga drykki daginn fyrir brottför
  • Forðist djúpsteiktan, brasaðan eða saltan mat daginn fyrir siglingu.
  • Borðið góðan morgunverð. Borðið gjarnan hvítt brauð, hafragraut og ávexti þó ekki sítrus ávexti.
  • Forðist mikið koffein. Mikið kaffi er ekki það sem maganum líkar fyrir sjóferð.
  • Hafðu mat með þér á sjó. Gott er að hafa samlokur með kjúklingi eða kalkún. Kjötið er fitusnautt og brauðið er róandi í maga. Hafðu endilega eitthvað til að grípa í sem er létt í maga. Bananar eru mjög góðir til að narta í ef þú finnur fyrir ógleði en einnig er gott að hafa létt kex eða annað sem er ekki salt eða fitumikið.
  • Drekkið vel af vatni en einnig er gott er að drekka kóla drykki eða engiferöl í sjóferðinni

Lyf við sjóveiki þ.e. lyf sem slá á einkennin og fást án lyfseðils í apóteki.

  • Koffínátín – fæst án lyfseðils
  • Postafen – fæst án lyfseðils
  • Scopolamin plástur – lyfseðilsskyltEinnig má fá armbönd gegn ferðaveiki sem sumir telja að hjálpi.

Önnur ráð:

  • Engifer er jurt sem nýlega hefur fengið aukna athygli vegna þess að því er haldið fram að hún geti slegið á ógleði sem fylgir sjóveiki. Til forna tuggðu kínverskir sjómenn engiferrót til að draga úr sjóveiki. Flest lyf sem virka á ógleði verka á heilann en engifer virkar aðeins á magann. Ráðlagt er að taka 1000 mg. hylki hálftíma fyrir brottför. Einnig má taka eitt eða tvö 500 mg. hylki sem eru til viðbótar á ferðalaginu. Ekki er ráðlagt að drekka coke með engifertöflum.
  • Piparminta og te eru einnig gömul húsráð við ferðaveiki.
  • Sumum finnst betra að taka sýrujafnandi töflur, Alminox eða slíkt áður en þú heldur á sjó og þá er gott að hafa box með út á sjó.

Hvar í skipinu er best að vera o.fl.

  • Minna finnst fyrir hreyfingu og veltingi ef maður er staddur næst miðju bátsins.
  • Mörgum finnst gott að vera í kulda, t.d.að vera úti á dekki og láta vindinn leika um sig.
  • Matarlykt fer illa í þá sem hætt er við sjóveiki og einnig pústið frá bátnum.

Þungun:

Þungaðar konur sem þjást af sjóveiki mega nota koffinátín í litlum skömmtum en best er að ráðfæra sig við lækni eða lyfjafræðing.
Þunguðum konum er ekki ráðlagt að nota engifer þar sem það er ekki staðfest hvort það geti haft skaðleg áhrif á fóstur.

Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.