Sigurjón og Auðunn jafnir efstir á Skákþingi Vestmannaeyja 2026
Sigurjón Þorkelsson og Auðunn Haraldsson með bikarinn. Ljósmyndir/aðsendar

Skákþing Vestmannaeyja 2026 lauk 19. febrúar þegar síðasta umferð mótsins fór fram í skákheimili Taflfélags Vestmannaeyja (TV) við Heiðarveg. Alls tóku 10 keppendur þátt og voru tefldar níu umferðir. Umhugsunartími var 60 mínútur á skák auk 30 sekúndna viðbótar á hvern leik. Teflandi skákstjóri var Sæmundur Einarsson.

Sigurjón Þorkelsson, núverandi skákmeistari Vestmannaeyja, og Auðunn Haraldsson, kennari, unnu báðir sínar skákir í lokaumferðinni og enduðu jafnir og efstir með átta vinninga hvor. Þeir munu því tefla þrjár atskákir (15 mínútur á skák auk 5 sekúndna á leik) og ræðst þá hvor þeirra hlýtur titilinn Skákmeistari Vestmannaeyja 2026.

Arnar Sigurmundsson varð í þriðja sæti með 6,5 vinninga. Í fjórða sæti varð Sæmundur Einarsson með 5,5 vinninga. Í 5.–6. sæti urðu Hallgrímur Steinsson og Arnar Bogi Andersen með 4,5 vinninga. Aðrir keppendur hlutu færri vinninga.

Næsta verkefni Taflfélags Vestmannaeyja er þátttaka í seinni hluta Íslandsmóts skákfélaga 2025–2026 sem fram fer í Reykjavík dagana 5.–8. mars nk. TV teflir fram átta manna sveit í sex liða úrvalsdeild og tveimur sex manna sveitum í 4. deild. Keppni í úrvalsdeild hefst 5. mars en 7. mars í öðrum deildum. Alls koma 25–30 keppendur frá félaginu við sögu, þar af þrír erlendir skákmeistarar. Aðrir eru félagsmenn TV, búsettir ýmist á fastalandinu eða í Vestmannaeyjum.

Skákkennsla fyrir ákveðnar bekkjadeildir í Grunnskóla Vestmannaeyja er nú í fullum gangi. Auðunn Haraldsson annast kennsluna þar og einnig þjálfun lengra kominna í skákheimili TV við Heiðarveg.

Hraðskákmeistaramót Vestmannaeyja 2026 fer fram í vikunni fyrir páska í skákheimili TV við Heiðarveg 9. Nánar verður greint frá mótinu þegar nær dregur, segir í frétt frá Taflfélagi Vestmannaeyja.

Nýjustu fréttir

Laskað lið ÍBV tapaði gegn Val
Athugasemd
Dísa leiðir Eyjalistann
Kvenfélagið Líkn færði HSU veglega gjöf
Loðnan tengir saman Vestmannaeyjar og Japan
Listir og menning í Framhaldsskóla Vestmannaeyja
Lestur ársreiknings bæjarins gefur allt aðra mynd
Ísólfur Gylfi – 42 ár frá Helliseyjarslysinu
Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.